fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Ekkert bólar á hinsegin fræðslu í Kópavogi

Bæjarfulltrúi vill flýta vinnu vegna undirbúnings á hinsegin fræðslu

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. janúar 2016 09:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, Bergljót Kristinsdóttir, óskaði eftir því á fundi skólanefndar að menntasvið hraði vinnu sinni vegna undirbúnings á hinsegin fræðslu í bæjarfélaginu.

Í bókun sem Bergljót lagði fram á fundinum sagði:

„Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 12 maí 2015 að óska eftir því að Menntasvið vinni umsögn og komi með tillögur að útfærslu á hinsegin fræðslu í grunnskólum Kópavogs eftir tillögu frá Samfylkingunni. Ekkert hefur bólað á þeirri umsögn. Undirrituð óskar efir að Menntasvið hraði vinnu sinni og leggi niðurstöður fyrir Skólanefnd hið fyrsta.“

Hinsegin fræðsla var samþykkt í Hafnarfirði í október á síðasta ári, en tillagan var vægast sagt umdeild.

Þar er gert ráð fyrir því að kostnaður vegna fræðslunnar nemi 875 þúsund krónum fyrsta árið, en 100 þúsund eftir það. Bærinn gerir þannig verksamning við Samtökin´78 um fræðslu fyrir allt starfsfólk bæjarins.

Samningurinn tryggir einnig að samtökin standa fyrir árlegri fræðslu fyrir nemendur í 8. bekk í öllum grunnskólum bæjarins og borgar bærinn 245 þúsund krónur á ári vegna hennar.

Í minnisblaðinu kemur fram að heildarkostnaður bæjarfélagsins á þessu ári verði um 1,5 milljón en verði síðan um hálf milljón eftir það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Í gær

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Telur að aðeins tvö lönd í heiminum séu örugg ef kjarnorkustyrjöld brýst út

Telur að aðeins tvö lönd í heiminum séu örugg ef kjarnorkustyrjöld brýst út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skiptar skoðanir um hús eftir verðlaunaarkitekt – „Ég finn brunalykt við að horfa á það“

Skiptar skoðanir um hús eftir verðlaunaarkitekt – „Ég finn brunalykt við að horfa á það“