fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Talsmaður íslenska túnfisksins var dæmdur fyrir verðbréfasvik

– Frægur japanskur hvítflibbabrotamaður kynnti túnfisk í sendiráði Íslands í Tókýó – Stofnaði eitt stærsta netfyrirtæki Japans

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. janúar 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Húsnæði sendiráðs Íslands í Tókýó var lánað undir kynningu á íslenskum túnfiski þar sem „þekktasti hvítflibbabrotamaður Japans“ var fenginn til að vekja athygli á vörunni. Viðburðurinn var á vegum dr. Eyþórs Eyjólfssonar, sem hefur um árabil unnið að markaðssetningu íslenskra sjávarafurða í Japan, sem segir þátttöku japanska athafnamannsins Takafumi Horie hafa skipt sköpum. Takafumi, sem sat í fangelsi í tæp tvö ár fyrir verðbréfasvik, var sæmdur nafnbótinni heiðurstalsmaður íslensks túnfisks í Japan en utanríkisráðuneytið áréttar að hann starfi ekki, og hafi ekki verið skipaður í neina stöðu, á vegum íslenskra stjórnvalda.

Takafumi Horie og Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Tókýó, tóku þátt í kynningu á íslenskum túnfiski í Japan.
Kynntu túnfisk Takafumi Horie og Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Tókýó, tóku þátt í kynningu á íslenskum túnfiski í Japan.

„Við kölluðum hann heiðurstalsmann. Hann veitti þeim japanska veitingastað sem keypti og bar mest fram af íslenskum túnfiski ákveðna viðurkenningu á kynningunni,“ segir Eyþór, framkvæmdastjóri japanska fyrirtækisins J-Trading, sem hóf að selja íslenskan túnfisk í fyrra.

Sendiherrann hélt ræðu

Kynningin fór fram í nóvember í fyrra og þangað mættu yfir 30 blaðamenn japanskra fjölmiðla. Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Tókýó, hélt stutta framsögu við upphaf viðburðarins sem haldinn var til að kynna túnfisk sem veiddur var við Ísland síðasta sumar af sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi hf. í Grindavík. Í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn DV segir að þátttaka sendiráðsins hafi verið liður í stuðningi við íslensk fyrirtæki í markaðssókn erlendis. Sendiráðið hafi síðasta haust lagt til aðstöðu undir þrjá aðra kynningarfundi.

„Hinir viðburðirnir voru vegna kynningar á Íslandi sem ferðamannalandi, kynningar á dúnafurðum og kynningar á snyrtivörum. Í öllum þessum tilvikum er sami háttur hafður á; sendiráðið leggur til aðstöðu og sendiherra býður gesti velkomna en viðburðir eru að öðru leyti alfarið á vegum viðkomandi fyrirtækja og á þeirra kostnað,“ segir í svarinu.

Líkt við vélkött

Líkt við vélkött

Takafumi Horie er einnig þekktur sem Horiemon í Japan. Ástæðan er sú að hann er talinn líkjast teiknimyndafígúrunni Doraemon, þybbnum vélketti sem ferðast aftur úr framtíðinni til að aðstoða ungan japanskan dreng við ýmis verkefni, í útliti.

Breski vefmiðillinn Undercurrent News, sem sérhæfir sig í fréttum úr sjávarútvegi, vakti athygli á þátttöku Takafumi í kynningunni. Í frétt miðilsins er fullyrt að sendiráðið hafi komið að heiðursnafnbótinni en utanríkisráðuneytið og Eyjólfur staðfesta að svo var ekki.

Hneyksli sem skók Japan

Takafumi sat í fangelsi í japönsku borginni Nagano í 21 mánuð en var sleppt í mars 2013. Einu ári síðar lýsti breska dagblaðið Financial Times honum sem „þekktasta hvítflibbabrotamanni Japans“. Athafnamaðurinn, sem hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu, vildi í viðtali við breska blaðið lítið sem ekkert tjá sig um viðskiptaferil sinn sem stofnandi og fyrrverandi forstjóri japanska stórfyrirtækisins Livedoor. Það var stofnað 1995 og var um tíma eitt stærsta netfyrirtæki landsins.

Í ársbyrjun 2006 rann söluæði á fjárfesta sem vildu ólmir losna við hlutabréf í Livedoor eftir að rannsókn japanska fjármálaeftirlitsins á fyrirtækinu hafði spurst út. Sölukerfi kauphallarinnar réði ekki við álagið og þurfti að loka fyrir öll viðskipti fyrir hefðbundinn lokunartíma í fyrsta sinn í sögu hennar. Livedoor var tekið af markaði þegar í ljós kom að stjórnendur þess hefðu stundað ólögleg hlutabréfaviðskipti og fegrað afkomutölur. Dómurinn sem Takafumi hlaut í undirrétti árið 2007 var vegna verðbréfasvika (e. securities fraud) og neitaði hæstiréttur landsins að taka áfrýjunarbeiðni hans fyrir.

Ég er enginn dómari í því máli en tel að ekki eigi að refsa fólki ævilangt fyrir eitthvað sem það gerði áður.

„Auðvitað er hann umdeildur. Þessi maður sat inni, það gerði hann vissulega, en margur Japaninn hefur sloppið fyrir svipaðan verknað. Ég er enginn dómari í því máli en tel að ekki eigi að refsa fólki ævilangt fyrir eitthvað sem það gerði áður. Við náðum aftur á móti 35 fulltrúum japanskra blaða inn í sendiráðið vegna þess að hann var þarna. Ég sé fyrir mér að við getum notað þennan mann og hans tengsl til að koma Íslandi og öðrum íslenskum vörum frekar á framfæri í Japan,“ segir Eyþór.

Vinsæll á Twitter

Samkvæmt umfjöllun Financial Times sér Takafumi ekki eftir því hvernig hann bar sig árin áður en hneykslið í kringum Livedoor kom upp. Hann var þekktur fyrir að þeysast um götur Tókýó á silfurbláum Ferrari, bjóða ungum kvikmyndaleikkonum til fjarlægra Kyrrahafseyja og framboð sitt til japönsku þingkosninganna 2006. Breska dagblaðið vekur einnig athygli á því hversu fljótt Takafumi tókst að notfæra sér Youtube og Twitter í viðskiptalegum tilgangi eftir að hann lauk afplánun. Eyþór bendir einnig á vinsældir japanska samstarfsaðila síns á Twitter.

„Hann er með um milljónir fylgjenda á Twitter og mjög vinsæll meðal yngri kynslóða Japans. Það helgast af ferli hans en hann er mjög vinsæll spjallþáttagestur og fólk hlustar á hann. Við erum því á ákveðinn hátt að stytta okkur leið í kynningarstarfinu enda er ekki sjálfgefið að fá slíka kynningu og vekja svona mikla athygli á vörunni og skapa eftirspurn. Þessi túnfiskur sem er að koma að heiman er mjög góður en það er ekki nóg. Hvað er þá betra en að fá mann með milljónir fylgjenda á Twitter?“ spyr Eyþór.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Pogba
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu