Amad Diallo, vængmaður Manchester United, gæti verið á förum frá félaginu á láni. Þetta segir félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano.
Rauðu djöflarnir eru tilbúnir til þess að lána leikmanninn og er Birmingham í ensku B-deildinni líklegasti áfangastaðurinn.
Diallo er aðeins 19 ára gamall. Hann kom til Man Utd frá Atalanta fyrir ári síðan.
Diallo hefur aðeins komið við sögu í níu leikjum fyrir aðallið Man Utd á tíma sínum þar. Á þessari leiktíð hefur hann ekkert komið við sögu í ensku úrvalsdeildinni.
Hjá Birmingham myndi leikmaðurinn án efa fá fullt af mínútum. Liðið er í átjánda sæti B-deildarinnar, 8 stigum fyrir ofan fallsvæðið.