Sasha Attwood hefur ákveðið að fyrirgefa Jack Grealish öll hliðarsporin síðustu mánuði en hann hefur verið að hitta nokkrar konur.
Sasha og Grealish hafa verið saman frá unga aldri. Á síðustu vikum hafði Grealish verið í fréttum fyrir samband sitt við Emily Atack sem er sjónvarpskona í Bretlandi. Grealish og Atack höfðu verið að hittast í nokkrar vikur.
Svo komist í fréttirnar að á sama tíma hafi hann verið að hita Amber Gill sem er þekktust fyrir þátttöku sína í Love Island, þættir sem njóta vinsælda út um allan heim.
Sasha var sögð sár og reið en hefur ákveðið að fyrirgefa leikmanni Manchester City þessi framhjáhöld.
Grealish reynir nú sitt besta til að ná sáttum við Attwood og fjölskyldu hennar. Hann bauð fjölskyldunni hennar á sveitasetur í vikunni þar sem nóttin kostar 800 þúsund krónur.
Í húsinu eru fimm svefnberbergi en um er að ræða The Lakes by Yoo. Faðir Attwood átti afmæli og ákvað Grealish að bjóða til veislu.