fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Guðmundur Felix er maður ársins 2021 – „Hann er hetja og fyrirmynd“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 31. desember 2021 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lesendur DV hafa valið manneskju ársins 2021. Að þessu sinni var það Guðmundur Felix Grétarsson sem hneppti titilinn en hann hefur svo sannarlega vakið heimsathygli á árinu eftir tímamótaaðgerð í byrjun árs þar sem hann gekkst undir tvöfalda handleggjaágreiðslu.

Sjá einnig: Handleggir hafa verið græddir á Guðmund Felix – Einstök aðgerð í sögu læknavísindanna

Um var að ræða fyrsta skiptið sem svona flókin aðgerð hefur verið framkvæmd í heiminum og þykir hún hafa markað tímamót í læknavísindum. Guðmundur hefur staðið sig eins og hetja í endurhæfingunni eftir aðgerðina og hefur náð ótrúlegum árangri sem hefur farið fram úr björtustu vonum.

Sjá einnig: Guðmundur Felix:„Hvaða fáviti fer í svona viljandi?“

Guðmundur missti báða handleggina árið 1998 þegar hann lenti í alvarlegu vinnuslysi. Hann vakti svo mikla athygli fyrir um áratug síðan er hann hóf að safna sér fjármagni til að geta haldið til Frakklands til að gangast undir ágræðsluna. Sú söfnun gekk vonum framar og flutti Guðmundur Felix til Frakklands árið 2013 og stóðu vonir þá til þess að fljótlega væri hægt að framkvæma aðgerðina. Ferlið reyndist þó mun lengra og strangara en aldrei gafst Guðmundur upp og rættist draumurinn nú í byrjun árs.

Fram að því hafði Guðmundur gert allt hvað hann gat til að halda sér í líkamlegu formi til að líkami hans gæti betur tekist á við aðgerðina og æfði crossfit, jóga og útihlaup. Eftir aðgerðina hefur hann svo stundað endurhæfingu og þjálfun af aðdáunarverðri samviskusemi sem hefur vakið mikla eftirtekt.

Sjá einnig: Guðmundur Felix náði markmiði sínu – Skóflaði í sig jólasúpunni hjálparlaust

Þeir lesendur sem tilnefndu Guðmund sögðu hann vera mikla fyrirmynd fyrir jákvæðni, kjark, þrautseigju, hugrekki og dugnað og hlaut hann 22,5 prósent atkvæða. Hér má sjá dæmi um umsagnir sem fylgdu nokkrum af þeim fjölmörgu tilnefningum sem Guðmundur fékk.

„Hann er hetja og fyrirmynd fyrir jákvæðni, kjark og heiðarleika.“ 

„Ber höfuð og herðar yfir alla. Maður aldarinnar. Þvílík þrautseigja, hugrekki og dugnaður hefur ekki sést hingað til hjá núlifandi Íslendingum.“ 

„Hann hefur staðið sig endalaust vel“ 

„Fyrir óþrjótandi dugnað, þrautseigju og jákvæðni. Hann gafst aldrei upp og sá draum sinn verða að veruleika og sýndi hvað hægt er að gera þrátt fyrir að standa frammi fyrir því sem næst ómögulegum aðstæðum. Hann mun verða öðru fólki og læknavísindunum fyrirmynd í framtíðinni.“

„Hann er jákvæður og góð fyrirmynd. Algjör hetja“ 

„Hefur sýnt ótrúlegt æðruleysi í skelfilegum og nánast ómanneskjulegm aðstæðum síðustu tvo áratugi og nú árið 2021 virðast vonir hans ætla að rætast.“ 

Mjótt á munum

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, var í öðru sæti í kosningunni með 18,7 prósent atkvæða. En Þórólfur hefur staðið í framlínunni í baráttunni við kórónuveiruna.

Rúna Sif Rafnsdóttir var svo í þriðja sæti með 16 prósent atkvæða en hún bjargaði lífi kornungs drengs sem var vart hugað líf með því að gefa honum hluta af lifur sinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“