fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Ríkisstjórn Bretlands gefur áramótapartíum grænt ljós – „Það versta er yfirstaðið“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. desember 2021 18:30

Ríkisstjórn Boris Johnson ætlar að skrifa endurminningar sínar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Skemmtið ykkur, en farið varlega,“ eru skilaboð bresku ríkisstjórnarinnar til ungmenna á leið á gott skrall um áramótin sem nú nálgast óðfluga. Gillian Keegan, einn aðstoðarheilbrigðisráðherra Bretlands, sagði að þeir sem væru á leið á mannamót ættu að huga að sínum persónulegu sóttvörnum og taka próf og reyna að skemmta sér sem mest utandyra.

Þrátt fyrir gríðarlega aukningu í Covid-19 smitum í Bretlanda undanfarnar vikur hefur aukningin ekki skilað sér í fjölgun innlagna. Raunar hefur mánaðarlegum innlögnum fækkað um 50% frá því í desember fyrir ári.

Frá þessu greinir Daily Mail nú í dag.

Helstu sérfræðingar Bretlandseyja í sóttvörnum hafa svo síðustu daga lýst yfir stuðningi við ákvörðun ríkisstjórnar Boris Johnson um að grípa ekki til herta aðgerða yfir jól og áramót. Hefur Daily Mail eftir Sir John Bell, prófessor í læknisfræði við Oxford háskóla og meðlimur í bólusetninganefnd breska ríkisins, sagði að almenningur hefði sýnt af sér „þokkalega ábyrgð,“ er kom að viðbrögðum við útbreiðslu Ómíkron afbrigðisins svokallaða.

Gillian Keegan sagði þá jafnframt við fjölmiðla í Bretlandi að stjórnvöld hefðu alltaf sent þau skilaboð út að fólk ætti að fara varlega og að engin breyting væri nú á því. „Farið varlega, farið í hraðpróf áður en þið farið út. Dveljið í vel loftræstum rýmum. Ég hef farið í nokkur samkvæmi utandyra, og fólk er að færa samkvæmi sín út,“ bætti ráðherrann við.

„Förum varlega,“ eru skilaboð ráðherrans og ríkisstjórnarinnar.

Mikill þrýstingur er nú á ríkisstjórn Boris Johnson að stytta einangrunarvist fyrir einkennalausa niður í fimm daga eftir að Bandaríkin riðu á vaðið með það í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast