fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Fréttir

Gerir Klöppum kleift að sækja sér grænt fjármagn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. desember 2021 10:09

Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþjóðlega sjálfbærnifyrirtækið ISS ESG hefur gert úttekt á starfsemi Klappa og staðfest að hún sé græn. Matið byggir á því að yfir 90% af tekjum fyrirtækisins kemur frá hugbúnaði þess sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum.

Er þetta í fyrsta skipti sem sambærileg starfsemi hlýtur slíka staðfestingu frá viðurkenndum aðila líkt og ISS ESG og því ljóst að um er að ræða mikla viðurkenningu fyrir Klappir. Fyrirtækið hefur um árabil verið leiðandi á sviði hugbúnaðargerðar fyrir sjálfbærniupplýsingagjöf fyrirtækja og stofnana og hefur sem slíkt skapað stafrænt vistkerfi á milli aðila til að deila upplýsingum sín á milli. Vistkerfið auðveldar allt utanumhald um sjálfbærniupplýsingar og hvetur fyrirtæki til að bæta frammistöðu sína út frá viðmiðum um umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti.

Samhliða mati sínu hefur ISS ESG gefið jákvætt ytra álit á nýjum grænum fjármálaramma Klappa en þetta er í fyrsta skipti sem ISS-ESG gerir slíkt hér á landi. Grænn fjármálarammi mun gera Klöppum kleift að sækja sér grænt fjármagn frá fjárfestum og lánastofnunum til að fjármagna starfsemi og vöxt fyrirtækisins. Með þessu vill fyrirtækið einnig stuðla að aukinni þátttöku fyrirtækja á íslenskum fjármálamarkaði útfrá grænum forsendum og virkja fjárfesta og lánastofnanir til að taka þátt í þeirri vegferð. Slíkt mun styðja við loftslagsmarkmið Íslands undir Parísarsamningnum og auka við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í græna hagkerfinu, íslensku atvinnulífi og framtíðarkynslóðum til heilla.

„Í upphafi voru Klappir eingöngu hugmynd að því sem koma mætti í framkvæmd með samstilltu átaki fjölmargra hagaðila sem deildu sömu sýn. Í dag erum við drifkraftur í sjálfbærnimálum á Íslandi. Hundruð fyrirtækja vinna með hugbúnaðarlausnir Klappa og nýta þær til að ná árangri í sjálfbærni. Þá er stafrænt vistkerfi okkar farið að teygja sig út fyrir landsteinana og erlendir aðilar byrjaðir að tengjast innviðunum, nota hugbúnaðarlausnirnar og/eða að prófa sig áfram með reynsluaðgang. Klappir þurfa að hafa aðgang að grænu vaxtarfjármagni í formi hluta-, skulda- og  og lánsfjár svo að tryggja megi langtímavöxt félagsins. Grænn fjármálarammi Klappa er mikilvægt skref í að opna aðgang að grænu vaxtarfjármagni. Grænt vaxtarfjármagn gefur okkur tækifæri til að vinna áfram að grænni og sjálfbærari framtíð, vaxa og sækja fram erlendis,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“
Fréttir
Í gær

Nova flytur á Broadway

Nova flytur á Broadway
Fréttir
Í gær

Framkvæmdastjóri hjá DAS svarar Jóhanni – „Ef íbúðin er afþökkuð er hún boðin næsta umsækjanda“

Framkvæmdastjóri hjá DAS svarar Jóhanni – „Ef íbúðin er afþökkuð er hún boðin næsta umsækjanda“
Fréttir
Í gær

Segir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar litlu skila með ærnum tilkostnaði – „Um 250 milljarða. Það eru eitt eða tvö þjóðarsjúkrahús“

Segir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar litlu skila með ærnum tilkostnaði – „Um 250 milljarða. Það eru eitt eða tvö þjóðarsjúkrahús“
Fréttir
Í gær

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“
Fréttir
Í gær

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lést á Hrunavegi eftir að hafa ekið á röngum vegarhelmingi á afskráðum jeppa

Lést á Hrunavegi eftir að hafa ekið á röngum vegarhelmingi á afskráðum jeppa