fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Fréttir

Svona leit morgunmaturinn út á Landspítalanum í dag – „Svo furðar fólk sig á því að sjúklingar séu með næringarskort“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 16. desember 2021 11:00

Mynd af morgunmatnum: Skjáskot/Twitter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgunmaturinn á Landspítalanum í dag var vægast sagt ekki upp á marga fiska. Morgunmaturinn innihélt graut, brauð, ostsneið, hálfan banana og bolla af nýmjólk.

Sólveig Hauksdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur á Landspítalanum, var að minnsta kosti ekki svo hrifin af morgunmatnum en hún deildi mynd af honum í færslu sem hún birti á Twitter-síðu sinni í dag. „Enginn matur er eins ólystugur og Landspítalamorgunmaturinn,“ skrifar Sólveig um morgunmatinn.

Hún segir að grauturinn hafi verið ósaltaður, brauðið hafi verið óristað og þurrt og að ostasneiðin hafi sömuleiðis verið þurr. Þá furðar hún sig á því að með þessu fylgji fullur bolli af nýmjólk.

„Svo furðar fólk sig á því að sjúklingar séu með næringarskort,“ segir hún.

Á heimasíðu Landspítalans er hægt að finna töluvert af upplýsingum um matinn sem er framreiddur þar. „Það er alltaf mjög mikilvægt að nærast vel, sérstaklega þegar maður er veikur því þá þarf líkaminn orku og næringu til að byggja sig upp,“ segir til að mynda á heimasíðunni um næringu og máltíðir sjúklinga.

„Við matseðlagerð á Landspítala er hugað að samspili næringar, bragðs, útlits, gæða, kostnaðar og framleiðslugetu,“ segir einnig á heimasíðunni. Það virðist þó vera sem einungis eitt af þessum atriðum sé tekið til greina við gerð morgunmatsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi

Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakamál klúðraðist vegna skyldleika lögreglumanns og brotaþola

Sakamál klúðraðist vegna skyldleika lögreglumanns og brotaþola
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flugdólgur handtekinn á Reykjavíkurflugvelli

Flugdólgur handtekinn á Reykjavíkurflugvelli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Viktor segir að gervigreind skrifi ekki á vef Iceland Review og gerir athugasemd við umfjöllun Heimildarinnar

Viktor segir að gervigreind skrifi ekki á vef Iceland Review og gerir athugasemd við umfjöllun Heimildarinnar