fbpx
Föstudagur 07.nóvember 2025
Fréttir

„Jólagjöfin í ár“ gerir allt vitlaust í Costco – Stór sending kláraðist á þremur mínútum

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 11. desember 2021 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 11. nóvember á þessu ári fjallaði DV um „jólagjöfina í ár“ sem var að gera allt brjálað í verslun Costco í Kauptúni. Um er að ræða loftsteikingarpott, eða AirFryer eins og potturinn er gjarnan kallaður. Potturinn „djúpsteikir“ mat með lofti en ekki olíu og er afar vinsæll, ekki síst vegna áhrifavalda og annarra samfélagsmiðlastjarna.

Svo virðist vera sem umræddur loftsteikingarpottur verði undir hverju einasta jólatré á landinu því heilu brettin af pottunum hverfa á nokkrum mínútum. Það er oft talað um að hlutir seljist eins og heitar lummur en eftir þessi jól verður ábyggilega talað um að hlutir seljist eins og loftsteikingarpottar í Costco fyrir jól.

Sjá einnig: Allt brjálað í Costco:Heilu brettin af „jólagjöfinni í ár“ koma og fara – „Einn labbaði út með 8 stykki“

Átta bretti horfin á þremur mínútum

Sigurður Helgi Pálmason er einn þeirra sem varð vitni að þessu kaupæði en hann ræddi við Auðun Georg Ólafsson á K100 um kaupæðið. Sigurður var staddur í Costco til að kaupa jólagjöf fyrir fjölskyldumeðlim og áttaði sig ekki alveg á því hvers vegna þessi langa röð var búin að myndast fyrir utan verslunina.

Þegar hann sá átta full vörubretti af loftsteikingarpottunum vinsælu áttaði hann sig á því hvers vegna fólk beið fyrir utan.

Sigurður segir að fólk hafi verið afar fljótt að tæma alla pottana af brettunum. „Það tók svona þrjár mínútur fyrir allar palletturnar að hverfa,“ segir hann.

Samkvæmt Sigurði keypti einn aðili 14-16 loftsteikingarpotta. „Það eru allir í fjölskyldunni hans að fá Air Fryers í jólagjöf,“ segir hann. „Það voru allir brjálæðislega ánægðir. Nema þeir sem komu svona tíu sekúndum of seint,“ segir Sigurður en hann ákvað að grípa með sér tvo potta líka fyrst hann hafði tækifæri til þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Catalina hafði ekki erindi sem erfiði – Taldi Happdrætti Háskólans snuða sig

Catalina hafði ekki erindi sem erfiði – Taldi Happdrætti Háskólans snuða sig
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann
Fréttir
Í gær

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Í gær

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka
Fréttir
Í gær

Ákærður nauðgari ætlaði úr landi

Ákærður nauðgari ætlaði úr landi