Chelsea og Manchester United gerðu jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn fór fram á Brúnni.
Chelsea stýrði leiknum í fyrri hálfleik en hefði þó viljað ógna meira á síðasta þriðjungi vallarins.
Callum Hudson-Odoi fékk bæsta færi fyrri hálfleiks strax á 4. mínútu þegar hann slapp í gegn. David De Gea sá hins vegar við honum.
Staðan í hálfleik var markalaus.
Man Utd komst yfir á 50. mínútu gegn gangi leiksins. Jorginho gerði þá slæm mistök fyrir miðju vallarins, missti boltann til Jadon Sancho sem þeyttist upp völlinn og skoraði. Þetta var hans fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni og annað mark fyrir Man Utd. Hann skoraði í Meistaradeildinni í síðustu viku.
Um miðbik seinni hálfleiks fékk Chelsea vítaspyrnu. Thiago Silva var þá klókur og kom sér fyrir Aaron Wan Bissaka sem ætlaði að sparka í boltann. Í stað þess sparkaði hann Silva niður í teignum. Jorginho fór á punktinn og skoraði af öryggi.
Chelsea var líflegri aðilinn eftir markið en tókst þó ekki að skapa sér nein dauðafæri.
Man Utd hefði getað stolið sigrinum í lokin þegar Edouard Mendy, markvörður Chelsea, átti slæma sendingu út úr vörninni beint á Fred. Brassinn fór hins vegar afar illa að ráði sínu og skilaði boltanum í raun bara aftur á Mendy.
Lokatölur 1-1. Það er óhætt að ætla að Man Utd sé sáttara með úrslitin en heimamenn.
Chelsea er á toppi deildarinnar með 30 stig, stigi á undan Manchester City. Man Utd er í áttunda sæti með 18 stig.