fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
433Sport

Xavi efstur á blaði en Börsungar væru líka til í Klopp

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 28. október 2021 08:37

Xavi / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamenn Barcelona ákváðu í gær að reka Ronald Koeman úr starfi eftir slæmt gengi undanfarið. Xavi þjálfari Al-Sadd í Katar er líklegastur til að taka við en Jurgen Klopp er líka á óskalistanum.

Barcelona tapaði á útivelli gegn Rayo Vallecano í spænsku La Liga í gær. Radamel Falcao gerði eina mark leiksins þegar hálftími var liðinn. Memphis Depay brenndi af víti fyrir gestina á 72. mínútu. Barcelona er í níunda sæti deildarinnar með 15 stig eftir tíu leiki. Rayo Vallecano er í fimmta sæti með 19 stig.

GettyImages

Vandræði Barcelona hafa mikið verið í umræðunni og var ákveðið að reka Koeman. Hann hafði stýrt liðinu í eitt og hálft tímabil.

Xavi er ein af hetjum félagsins en hann hefur verið sigursæll í Katar og er klár í að taka skrefið heim til Katalóníu. Sport á Spáni segir að Jurgen Klopp heilli forráðamenn Barcelona. Ólíklegt er þó að hægt sé að lokka hann frá öflugu liði Liverpool.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Óvæntar fréttir af Salah eftir umræðuna undanfarið

Óvæntar fréttir af Salah eftir umræðuna undanfarið
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Áfall fyrir Manchester City – ,,Þetta lítur ekki vel út“

Áfall fyrir Manchester City – ,,Þetta lítur ekki vel út“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

PSG franskur meistari eftir tap Monaco

PSG franskur meistari eftir tap Monaco
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Tjáir sig um framtíð Greenwood – ,,Þá getum við rætt málin“

Tjáir sig um framtíð Greenwood – ,,Þá getum við rætt málin“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Heppinn að vera með meðvitund eftir ‘árásina’ í gær – Sjáðu óhugnanlegt myndband

Heppinn að vera með meðvitund eftir ‘árásina’ í gær – Sjáðu óhugnanlegt myndband
433Sport
Í gær

England: Manchester City í engum vandræðum

England: Manchester City í engum vandræðum
433Sport
Í gær

Mistök hjá Liverpool? – Vill sjá fyrrum stjóra Chelsea við stjórnvölin

Mistök hjá Liverpool? – Vill sjá fyrrum stjóra Chelsea við stjórnvölin