Aron Jóhannsson er án félags og fundar með íslenskum félögum þessa dagana. Þetta herma heimildir 433.is.
Aron sem er 31 árs gamall rifti samningi sínum við Lech Poznan í Póllandi á dögunum. Ástæðan var sú að Aron meiddist á öxl og tæpt var að hann myndi spila fleiri leiki fyrir pólska félagið.
Aron hefur átt frábæran feril í atvinnumennsku síðustu ellefu ár. Hann hefur spilað með AGF í Danmörku, AZ Alkmaar í Hollandi, Werder Bremen í Þýskalandi, Hammarby í Svíþjóð og nú síðast Poznan í Póllandi.
Samkvæmt heimildum 433.is hefur Aron fundað með einu íslensku félagi og eru fleiri fundir á dagskrá á næstu dögum. Samkvæmt sömu heimildum hefur Aron þó ekki tekið ákvörðun um að snúa heim, hann skoðar nú kostina í stöðunni hér heima og erlendis.
Ætla má að öll stærstu félög Íslands gefi Aroni símtal en hann æfði með Val síðasta vetur. Aron hefur á ferli sínum spilað 19 landsleiki fyrir Bandaríkin.