fbpx
Fimmtudagur 05.febrúar 2026
Pressan

Milljónamæringahjón fundust látin á taílensku „Dauðaeyjunni“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 11. júní 2021 07:00

Koh Tao. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enn einu sinni er taílenska eyjan Koh Tao í sviðsljósinu vegna dularfullra mannsláta. Eyjan er paradís kafara en á síðustu árum hafa nokkrir ferðamenn verið myrtir á eyjunni og aðrir hafa tekið eigið líf. Þessir óhugnanlegu atburðir hafa orðið til þess að þessi annars svo friðsæla og fallega eyja er af sumum kölluðu „Dauðaeyjan“.

Á föstudaginn fundust hjónin Rakeshwar Sachathamakul, 59 ára, og 55 ára eiginkona hans, Anshoo, látin í sundlaug á lúxushóteli. Þau voru milljónamæringar sem höfðu auðgast á hótelrekstri. Það var sonur þeirra sem kom að þeim eftir strandferð. Þau voru úrskurðuð látin á vettvangi. Thai Examiner skýrir frá þessu.

Hefur blaðið eftir talsmanni lögreglunnar að hjónin hafi verið á barnum við sundlaugina áður en þau fóru í laugina til að synda.

Eftirlitsmyndavélar við laugina hafa verið bilaðar mánuðum saman og því ekki hægt að styðjast við upptökur úr þeim við rannsókn málsins. Ekki mátti nota laugina vegna sóttvarnaaðgerða vegna kórónuveirunnar en það bann virðast hjónin ekki hafa virt. Bráðabirgðaniðurstaða krufningar er að þau hafi drukknað en lögreglan vill ekki útiloka að eitthvað glæpsamlegt hafi átt sér stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu sláandi viðtal í Epstein-skjölunum – „Líturðu á sjálfan þig sem djöfulinn?“

Fundu sláandi viðtal í Epstein-skjölunum – „Líturðu á sjálfan þig sem djöfulinn?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ekki batnar staða Söruh Ferguson eftir nýjustu birtingu Epstein-skjalanna – „Gifstu mér bara“

Ekki batnar staða Söruh Ferguson eftir nýjustu birtingu Epstein-skjalanna – „Gifstu mér bara“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Æskuástin mín er í langtímasambandi við netsvikahrapp“

„Æskuástin mín er í langtímasambandi við netsvikahrapp“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ættirðu að nota gervigreindina til að skipuleggja frí?

Ættirðu að nota gervigreindina til að skipuleggja frí?