Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar kl. 15 í dag. Fundurinn verður í Hörpu. Búast má við að þar verði kynntar hertari sóttvarnaaðgerðir.
Alma Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson yfirlögregluþjónn verða einnig á fundinum og svara spurningum blaðamanna.
DV mun flytja fréttir af fundinum skömmu eftir að hann hefst.