fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
433Sport

Var í sjálfsvígshugsunum og skrifaði kveðjubréfið – Síðan kom vinur hans með mikilvæga gjöf

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 14. mars 2021 08:30

Mynd/Pixabay - Mynd tengist fréttinni ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kórónuveirufaraldurinn hefur tekið sinn toll á fólki en mikið af ungu fólki hefur liðið sérstaklega illa vegna samkomubanna og annarra takmarkana. Fólk á öllum aldri hefur þurft að breyta hegðun sinni vegna veirunnar og leita margir til dæmis í tölvuleiki til að hjálpa geðheilsunni. SPORTbible ræddi við ungan mann á dögunum um áhrifin sem tölvuspil hafði á líðan hans en án tölvuleiksins sem hann spilaði þá væri hann líklega ekki lifandi í dag.

Will, ungi maðurinn sem rætt var við, var 16 ára gamall árið 2019. Hann var að ganga í gegnum mikla erfiðleika en hann var til dæmis nýhættur í langtímasambandi. Geðheilsan hans fór fljótt niður á við eftir sambandsslitin en hann opnaði sig í viðtalinu um það hvernig hann náði sér aftur á strik.

„Ég var ungur og leiður, það var mikið að gera í skólanum og ég var orðinn virkilega pirraður,“ sagði Will í viðtalinu við SPORTbible. „Mér leiddist, ég var leiður og einmana. Mér leið eins og ég væri fastur og að lífið væri með mig í hálstaki. Ég var týndur, pirraður og reiður,“ segir Will sem glímdi við sjálfsvígshugsanir á þessum tíma.

Will gekk svo langt að skrifa kveðjubréf þar sem hann hafði ákveðið að taka sitt eigið líf. „Ég hugsaði mikið um það, ég vildi losna við sársaukann,“ segir Will en hlutirnir héldu bara áfram að versna. Þar til vinur hans gaf honum knattspyrnutölvuleikinn Football Manager 19 að gjöf. Það átti eftir að skipta sköpum fyrir Will.

„Ég hugsaði ekki mikið um það en hann sagði mér að prófa. Ég var ekki svakalega góður ef ég á að vera alveg hreinskilinn en mig langaði að bæta mig og það hjálpaði geðheilsunni minni mikið. Þrautseigjan kenndi mér mikið, þetta var erfið brekka en ég komst upp hana.“

Will segist hafa orðið háður leiknum en á góðan hátt þó. Honum gekk að lokum vel í leiknum, hann vann til að mynda Meistaradeildina þrisvar sinnum með Aston Villa. „Þegar ég horfi til baka á þennan punkt í lífinu mínu þá sé ég hvað hann var mikilvægur. Ég var opinn fyrir því að prófa eitthvað nýtt í allra síðasta skiptið. Það kenndi mér að það er ekki þess virði að gefast upp – það er alltaf betra að reyna aftur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Newcastle vill kaupa þrjá leikmenn – Joao Pedro er ofarlega á lista

Newcastle vill kaupa þrjá leikmenn – Joao Pedro er ofarlega á lista
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Halda því fram að United sé komið í bílstjórasætið að fá Gyokeres

Halda því fram að United sé komið í bílstjórasætið að fá Gyokeres
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Nýtt í enska boltanum – Sjóðheitir varamenn verða teknir í viðtal í miðjum leik

Nýtt í enska boltanum – Sjóðheitir varamenn verða teknir í viðtal í miðjum leik
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Postecoglou gæti fengið stórt starf í Bandaríkjunum á næstu dögum

Postecoglou gæti fengið stórt starf í Bandaríkjunum á næstu dögum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Lið sem hafa lekið eins og KR hafa fallið – Óskar Hrafn þarf að skrifa söguna

Lið sem hafa lekið eins og KR hafa fallið – Óskar Hrafn þarf að skrifa söguna
433Sport
Í gær

Reka Van Nistelrooy úr starfi

Reka Van Nistelrooy úr starfi