Í þættinum Harmageddon ræddu þeir Frosti og Máni um leiksýningu sem Frosti fór á í vikunni. Frosti var ekki nógu sáttur með sýninguna og segir hana ekki hafa verið nægilega stuðandi og fannst hana skorta ádeilu á ríkjandi viðhorf.
Sýningin sem Frosti fór á heitir Rocky og er sýnd í Borgarleikhúsinu. Leikritið er samið af danska leikskáldinu Tue Biering en Sveinn Ólafur Gunnarsson fer með eina hlutverkið i leikritinu. Hann hlaut Edduna árið 2020 fyrir leik sinn í verkinu. Sýningin er unnin í samstarfi við leikfélagið Óskabörn ógæfunnar.
Frosti segir sýninguna hafi verið sóun á tíma hans því hún hafi ekki verið nægilega stuðandi. Hann hrósar Sveini fyrir frábæran leik en gagnrýnir verkið sjálft. Hann segir að sýningin snúist um það að gera grín af fólki sem er hrætt við útlendinga og fjölmenningu, en hann segir að það sé ekki nægilega stuðandi fyrir sig og að sýningin hafi ekki verið nægilega „shockerandi“.
Frosta finnst listin best þegar hún er ádeila á ríkjandi viðhorf og segir að rappið, leiklist og önnur list sé alltaf best þegar hún er stuðandi og er ádeila á eitthvað sem er ríkjandi í þjóðfélaginu. Hægri öfgastefna er ekki ríkjandi að hans sögn og því ekki nægilega gott að gera grín af henni. Þeir félagar segja það þurfi að gera ádeilu á jafnréttisbaráttu og kolefnisjöfnun en það verði aldrei sett á svið þar sem listamannalaun verði aldrei greidd fyrir verk af þeim toga. Sé ástandið dapurlegt vegna þess.
Leikfélagið Óskabörn ógæfunnar svaraði þeim Harmageddon-bræðrum í gær með færslu á Facebook-síðu sinni:
„Frosti í Harmageddon kom á sýningu og – svona þegar hann leit upp úr símanum sínum – fannst honum það sem hann sá ekki alveg nógu gott. Jú, reyndar fannst honum leikarinn með þeim betri á landinu og öll umgjörðin mjög töff,“ stendur í færslunni en samkvæmt færslunni fékk Frosti frítt á sýninguna og tapaði því engum peningum á því að sækja hana.
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=2040942686046310&id=161933907280540