fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Tók leigubíl í búð til að stela kjöti

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 10. febrúar 2021 05:08

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fyrsta tímanum í nótt var tilkynnt um þjófnað á kjöti úr verslun í Breiðholti. Lögreglan hafði afskipti af meintum þjófi sem hafði komið á vettvang í leigubifreið. Hann gat ekki greitt fyrir leigubifreiðina.

Á sjötta tímanum í gær meiddist maður á fæti í Esjunni, talið er að hann hafi ökklabrotnað. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í æfingarflugi og sinnti útkallinu og flutti manninn á Bráðadeild.

Einn ökumaður var handtekinn í gærkvöldi, grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna.

Lögreglan hafði afskipti af einum manni í miðborginni í nótt en sá er grunaður um vörslu fíkniefna. Mál hans var afgreitt með vettvangsskýrslu.

Á öðrum tímanum í nótt var maður í mjög annarlegu ástandi handtekinn á Kjalarnesi. Hann gat ekki gert grein fyrir sér og var ekki með nein skilríki. Hann var vistaður í fangageymslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin