fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Reglan sem Simmi og Jói settu sér strax í upphafi – Fyrir frægð og frama

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 21. desember 2020 11:41

Simmi Vill.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmar Vilhjálsmsson er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Sigmar, sem var í áraraðir einn þekktasti sjónvarpsmaður Íslands, hefur undanfarin ár einbeitt sér að viðskiptum.

Í þættinum fer Sigmar yfir fjölmiðlaferilinn og segir meðal annars frá reglum sem hann og Jóhannes Ásbjörnsson, sem var með honum 70 mínútum og síðar í „Idol Stjörnuleit“, settu sér strax í upphafi.

„Við vorum 23 ára þegar við settum okkur ákveðnar reglur. Við Jói ákváðum til dæmis að við værum bara ekki á djamminu. Við ákváðum að vera bara í matarklúbbum, af því að Ísland er lítið land og það væri bara ekki gott ef við værum aðgengilegir á djamminu. Eftir á að hyggja finnst mér það mjög þroskað af okkur að hafa sett okkur þessar reglur þegar við vorum þetta ungir,“ segir hann.

„Meira að segja eftir lokaþættina af Idolinu, þá var bara tekinn bjór með „crew-inu“ og svo heim. Ekkert djamm.“

Mömmumatur

Eftir sjónvarpsferilinn stofnaði Sigmar Hamborgarafabrikkuna og hefur á undanförnum árum verið í rekstri ýmissa fyrirtækja. Í þættinum segir Sigmar meðal annars frá því hvernig stofnun skemmtigarðs endaði með framleiðslu á mömmumat.

„Við stofnuðum Minigarðinn fyrir rúmu ári síðan, en svo var auðvitað augljóst að við værum ekki að fara af stað með það í miðjum faraldri. En svo var uppsöfnuð þörf hjá Íslendingum til að koma saman og við ákváðum að keyra á þetta og klára málið og opnuðum í júlí. Það er allveg rekstrarhæfi ef það mega koma saman 200 manns, þó að staðurinn taki mun fleiri, þannig að þetta var fínt í júlí ágúst og framan af september. Augljóslega virkar þetta ekki í því umhverfi sem er núna, en ég veit að þetta á heilmikið inni og við munum lifa þetta af. Aðstaðan í Minigarðinum gerði okkur líka kleyft að opna fyrir að framleiða mömmumat og þristamús, sem hefur gert heilmikið fyrir reksturinn. En ég viðurkenni það að ég reiknaði ekki með því í byrjun árs að mömmumatur og þristamús væru að fara að bjarga rekstrarárinu, en neyðin kennir naktri konu að spinna.”

Hann segir árið 2020 hafa verið gífurlega erfitt, en kýs engu að síður að stilla væntingum í hóf og reyna að vinna með stöðuna eins og hún er.

„Væntingastjórnun er lykilatriði í lífinu. Á endanum er alveg sama hvað maður er að gera. Lokaatómið er væntingastjórnun. Hvort sem það er vináttan, hjónabandið eða hvað sem það er. Upphafið að flestu sem fer illa er að einhver brást væntingum manns. Þess vegna kýs ég að horfa svo á að það verði ekki allt komið í topplag um páskana af því það er að koma bóluefni núna strax eftir áramót. Ég held að við verðum komin á góðan stað eftir ár og þá er bara mjög gott ef ég hef rangt fyrir mér, af því að þá eru það góðar fréttir. Það finnst engum gaman að heyra þetta, en það er þá bara gott ef það reynist rangt. Auðvitað er ekki auðvelt vera í stórum rekstri með 10 manna samkomubann, en það neyðir mann til að hugsa upp nýjar leiðir,“ segir hann.

Sigmar notar nú samfélagsmiðla til að fá útrás fyrir þörfina við að gefa út efni og nýtur þar mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmar um drífur hann áfram, árin í sjónvarpinu, hvað þarf til að vera frumkvöðull og margt margt fleira.

Þátinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=rw0nhtw3DM8&t=16s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta