fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Margrét hefur áhyggjur – „Er virkilega þörf á að kvelja börnin svona?“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 2. desember 2020 14:10

Mynd:/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Dóttir mín var að koma heim úr skólanum og er byrjuð að fá útbrot og áblástur útaf grímu notkun sama er að gerast með tvær vinkonur hennar, er virkilega þörf á að kvelja börnin svona?“

Þetta skrifar Margrét Friðriksdóttir frumkvöðlafræðingur á Facebook-síðu sína í dag en Margrét veitti DV góðfúslegt leyfi til að birta færsluna. „Það virðist einhver óþverri í þessum grímum,“ segir Margrét í samtali við DV um málið. „etta eru þessar bláu einnota sem þær fá gefins í skólnanum,“ segir hún síðan um grímurnar.

Í athugasemdum undir færslu Margrétar deila margir sömu áhyggjum og hún. „Það er betra að fá bara kóvid held ég. Mig klæjar svakalega í nefið undan glímunni. Held það séu eiturefni í þessu drasli. Kannski bara best að sauma grímuna,“ segir ein kona í athugasemd undir færslunni. „Það er víst Teflon í grímunum. Teflon hefur verið talið krabbameinsvaldandi,“ segir konan síðan áfram. „Ég fæ sting í lungun þegar ég er með þessar einnota, eitthvað eitur í þessu,“ segir Margrét þá.

Þrátt fyrir áhyggjur Margrétar og þeirra sem taka undir með henni er skýrt tekið á um grímuskyldu í þeim takmörkunum sem enn eru í gildi vegna kórónuveirunnar. „Andlitsgrímur skal nota í almenningssamgöngum, í verslunum og annarri þjónustu. Einnig skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun svo sem í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, auk þess í menningarstarfsemi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa,  hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi,“ segir í upplýsingum um grímuskylduna á covid.is.

„Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Undanþegnir grímuskyldu eru þeir einstaklingar sem fengið hafa Covid-19 og lokið einangrun. Jafnframt eru þeir undanþegnir grímuskyldu sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Í gær

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Í gær

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“
Fréttir
Í gær

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd