Aalesund og Vålerenga mættust í norsku úrvalsdeildinni í dag. Davíð Kristján Ólafsson spilaði allan leikinn í liði Aalesund. Viðar Örn Kjartansson byrjaði leikinn fyrir Vålerenga og var skipt út af fyrir Matthías Vilhjálmsson á 80. mínútu.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Heimamenn skoruðu fyrsta mark leiksins á 31. mínútu. Þar var að verki Parfait Bizoza eftir stoðsendingu frá Nordli.
Aron Dønnum jafnaði metin fyrir Vålerenga úr vítaspyrnu á 64. mínútu.
Vålerenga er í þriðja sæti deildarinnar með 46 stig. Aalesund er á botninum með 11 stig.
Aalesund 1- 1 Vålerenga
1-0 Parfait Bizoza (31′)
1-1 Aron Dønnum (64′)(Víti)