Óþarft er að kynna landsliðsfyrirliðann, KR-inginn, alþingismanninn og ritstjórann Ellert B. Schram. Hann hefur komið víða við á langri ævi og hvarvetna verið í forystuhlutverki. Ellert var meðal annars formaður KSÍ, forseti ÍSÍ, varaforseti Knattspyrnusambands Evrópu og hefur nýlega látið af störfum formanns Félags eldri borgara. Í gær komu út endurminningar Ellerts en þær skráir Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur.
Ellert rekur í bókinni lífshlaup sitt í hispurslausri og líflegri frásögn, allt frá uppvaxtarárum á stóru heimili í Vesturbænum fram til dagsins í dag. Þá fjallar hann til að mynda um það þegar hann var um skeið varaformaður Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA).
„Á árinu 1998 hætti forseti FIFA störfum. Hann hét João Havelange, Brasilíumaður sem hafði verið forseti samtakanna frá árinu 1974. Tveir kandídatar börðust um vegtylluna, Lennart Johansson frá Svíþjóð, sem þá var formaður Evrópusambandsins (UEFA) og Sepp Blatter, varaforseti FIFA. Lennart fór fram á það við mig að vera með í skipulagsnefnd hans um að safna fylgi. Við vorum fimm samtals sem skipuðum þessa kosninganefnd og í upphafi þurfti ég að sækja nær vikulega fundi af hans hálfu í Stokkhólmi til undirbúnings og atkvæðasmölunar. Við Lennart þekktumst vel og hann var heiðarlegur, frambærilegur og glöggur maður.“
Ellert segir þá frá því þegar hann fór í langt ferðalag til að fallast eftir atkvæði til Lennart. Þar hafi einstaklingur hreinlega spurt hann „Hvað borgið þið fyrir stuðninginn?“. Þá sagðist Ellert vera tilbúinn að senda þeim fótbolta, en sá sem spurði hafi átt von á öðru.
„Ég ferðaðist til allra heimsálfa til afla honum fylgis, svo sem til Dóminíkanska lýðveldisins, Pakistan og Japan. Ég var sendur alla leið til San Fransisco til þess eins að bjóða bandarískum þungavigtarmanni í hádegisverð í nafni Lennarts og fór svo beint aftur heim. Mig minnir svo að það hafi verið á Jómfrúareyjum í Karíbahafi þar sem ég var að falast eftir atkvæði fyrir Lennart sem viðmælandi minn spurði: „Hvað borgið þið fyrir stuðninginn?“ Ég hikstaði á svarinu en til að svara honum einhverju sagði ég: „Ja, við gætum sent ykkur fótbolta til að efla íþróttina.“ Blessaður maðurinn horfði á mig eins og hvern annan fávita. Hann hafði ímyndað sér annars konar fyrirgreiðslu. Enda kom það seinna í ljós að úrslitin réðust ekki af gæðum frambjóðandanna heldur mútunum sem buðust.“
Hann segir einnig frá því þegar að hann og Lennart fóru á fund í Argentínu. Hann segir að örlög Lennart hafi verið ráðin þegar hann sofnaði á þeim fundi.
„Við Lennart mættum meðal annars á fjölsóttan fund í Argentínu þar sem frambjóðendur voru kynntir. Andrúmsloftið var þungt á þessum fundi og margar langar ræður fluttar sem við Lennart skildum lítið í nema að það gerist þar sem við sátum í fremstu sætum, frambjóðandinn og liðsmenn hans, að Lennart hallar höfði og sofnar undir þessum ræðuhöldum. Lygndi aftur augum og missti höfuðið niður á bringu. Þá sá ég örlög framboðsins ráðin. Þú kýst ekki sofandi frambjóðanda. Enda fór það svo þegar atkvæðagreiðslan fór fram á aðalfundinum í París að þessi leikur var tapaður, þó ekki væri fyrir annað en að okkar maður dottaði þegar mest lá við.
Það var miður fyrir knattspyrnuhreyfinguna. Lennart Johannson lést vorið 2019. Sepp Blatter var kænn og klár en ég hafði fyrir löngu séð í gegnum hann, falsið og svindlið. Það liðu samt ár og dagar þangað til hann var staðinn að misnotkun fjár og öðrum prettum. Hann átti eftir að stórskaða knattspyrnuhreyfinguna áður en hann sagði loks af sér 2015.“
Hér má svo sjá mynd af kápu bókarinnar og svo mynd af Ellerti ásamt skrásetjara hennar Birni Jóni Bragasyni.