Piers Morgan einn frægasti sjónvarpsmaður Bretlands er vægast sagt óhress með misræmi í aðgerðum yfirvalda þar í landi í þeirri baráttu sem er gegn kórónuveirunni.
Englendingar geta ekki farið á íþróttakappleiki utan dyra en það er í góðu lagi að fylla leikhús og slíka staði. Í gær fór fram ráðstefna með Arsene Wenger fyrrum stjóra Arsenal.
London Palladium salurinn var troðfullur af fólki en þetta sama fólk sem hefur áhuga á knattspyrnu má ekki fara á völlinn. „Ég er forviða,“ skrifar Morgan um þessa staðreynd.
„Hvernig getur London Palldium verið troðfullt í gærkvöld á viðburði með Arsene Wenger, en knattspyrnuáhugafólk má ekki fara á völlinn utandyra. Þarna eru enginn fjarlægðatakmörk virt.“
Relgurnar í kringum COVID-19 hafa vakið furðu víða en Íslendingar hafa margir kvartað undan ósamræmi í reglum hér á landi.
How can the London Palladium be packed like this last night for an event with Arsene Wenger, but football fans aren’t allowed to watch matches outside even socially distanced?
I’m completely bemused. 👇 pic.twitter.com/updEL3KvV2— Piers Morgan (@piersmorgan) October 13, 2020