fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Íslenska auglýsingastofan hefur starfsemi á ný

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 9. október 2020 15:09

Íslenska auglýsingastofan var lengst af í þessu húsi við Laufásveg. mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska auglýsingastofan, ein stærsta auglýsingastofa landsins, fór í þrot fyrir skömmu. Missir langtímaviðskipta við Icelandair og kórónuveirufaraldurinn voru á meðal helstu ástæða þess að svo illa fór fyrir þessu gróna fyrirtæki. En núna hefur stofan verið endurlífguð,  Þormóður Jónsson hefur ásamt Baldvini Þormóðssyni keypt vörumerki og eignir Íslensku auglýsingastofunnar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem sent var til fjölmiðla rétt í þessu en þar segir:

„Þormóður hefur langa reynslu að baki í rekstri umsvifamikilla auglýsingastofa og við enduruppbyggingu starfsemi Íslensku auglýsingastofunnar hyggst hann jöfnum höndum sækja liðsauka til reynslubolta í faginu og yngra fólks sem nú þegar hefur gert sig gildandi á sviði markaðs- og kynningarstarfs. Til síðarnefnda hópsins verður sérstaklega höfðað með eignarhaldi og þátttöku Baldvins í daglegum verkefnum stofunnar. Baldvin er með BA gráðu í auglýsingagerð og hefur að undanförnu starfað við góðan orðstír sem markaðsráðgjafi og hugmyndasmiður hjá dönsku auglýsingastofunni Thank You Studio.

Þeir feðgar Baldvin og Þormóður hafa þegar tekið til starfa undir merkjum Íslensku auglýsingastofunnar og hafa tryggt sér atgervi sem frá fyrsta degi getur afgreitt verkefni á eðlilegum hraða fullbúinna auglýsingastofa. Gert er ráð fyrir að starfsemin verði rekin undir óbreyttu nafni í húsnæði stofunnar síðustu árin við Bræðraborgarstíg.

Samningur um kaupin var undirritaður hjá skiptastjóra þrotabúsins í dag. Hið keypta er vörumerki og viðskiptavild Íslensku auglýsingastofunnar ásamt tölvu- og húsbúnaði, fullum aðgangi að vistuðum gögnum og verkefnum stofunnar og öðru sem fyrirtækinu fylgir. Andvirði hins selda er trúnaðarmál enn sem komið er. Enginn eiginlegur rekstur hefur verið í félaginu frá því það var gefið upp til gjaldþrotaskipta. Forgangsverkefni á næstu dögum verður annars vegar að safna liði til starfa og hins vegar að endurvekja eins og kostur er viðskiptasambönd við fyrirtæki sem Íslenska auglýsingastofan þjónustaði fram að gjaldþrotinu til viðbótar við öflun annarra nýrra viðskipta.

Þormóður Jónsson: „Það er ögrandi verkefni að taka við þeim kyndli sem Íslenska auglýsingastofan hefur haldið á lofti í leiðandi hlutverki sínu á auglýsingamarkaðnum um langt árabil. Auglýsingastofa á ekki viðskiptavini sína né heldur verkin sem fyrir þá hafa verið framleidd. Hvorugt er því selt eða keypt í þessum viðskiptum en ég tel engu að síður mikil verðmæti fólgin í vörumerkinu og eignum þess. Ég veit að fyrsta fastráðna starfsfólkið sem mun fylkja sér að baki endurvakins reksturs mun fyllilega rísa undir þeim faglegu gæðum sem þetta stóra nafn og langa saga kallar á. Það er spennandi, en krefst líka ákveðinnar jafnvægislistar, að setja saman frá grunni öfluga liðsheild undir þessum merkjum. Við feðgar munum leitast við að tefla þar saman ólíkri þekkingu og áhugasviðum og gæta þess jafnframt að nýi og gamli skóli auglýsingagerðar og markaðsfræða mætist í gagnkvæmri virðingu og samhentu átaki. Ég er sannfærður um að útkoman á eftir að færa okkur skemmtilegt og árangursríkt samstarf, jafnt innanhúss sem í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila, á komandi árum.““

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast