fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Rauði krossinn hættir rekstri Konukots

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 30. september 2020 09:22

Marín og Kristín við Konukot. Aðsend mynd,

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun eru tímamót þegar Rauði krossinn hættir rekstri Konukots eftir 16 ára starfsemi og Rótin, félag um konur, áföll og vímuefni tekur við.

Rauði krossinn hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu um málið:

„„Konukot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, var opnað 10. desember 2004, sem tilraunaverkefni Rauða krossins í Reykjavík til tveggja ára. Rannsóknir og þarfagreiningar höfðu leitt í ljós að fjöldi kvenna var heimilislaus í Reykjavík en þjónusta við þann hóp var takmörkuð. Hugmyndin var sú að á þeim tveimur árum sem neyðarskýlið væri starfrækt væri hægt að útvega konunum félagslegt húsnæði og því væri ekki þörf fyrir neyðarskýli til lengri tíma“ segir Marín Þórsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu.

„Nú 16 árum síðar er hlutverki Rauða krossins lokið, enda er það markmið Rauða kross hreyfingarinnar um allan heim að hefja verkefni þar sem við sjáum þörf á þeim og sinna þeim þangað til aðrir geta eða vilja taka við þeim. Nú er komið félag sem einblínir á þennan málaflokk, það er að segja Rótin, félag um konur, áföll og vímuefni – sem er tilbúið að taka við og þá er rétti tíminn fyrir okkur að stíga til hliðar“ bætir Marín við.

Rauði krossinn mun áfram starfrækja skaðaminnkandi verkefni og hefur ekki sagt skilið við þennan mikilvæga málaflokk. Frú Ragnheiður heldur áfram að keyra um höfuðborgarsvæðið sex kvöld í viku og sinna gestum Konukots sem og öðrum sem þurfa á þeirri þjónustu að halda.  Þá eru einnig starfrækt sambærileg verkefni á Suðurnesjum og á Akureyri.

„Rauði krossinn treystir því að mannúð og skaðaminnkun verði áfram leiðarljós í starfi Konukots og að hagur skjólstæðinga verði ávallt í forgrunni. Við erum þakklát fyrir að gestir Konukots hafi treyst okkur í gegnum tíðina og eins erum við þakklát fyrir alla þá fjölmörgu sjálfboðaliða sem og frábært starfsfólk sem lagt hafa verkefninu lið síðastliðin ár.“

Í gegnum árin hafa fyrirtæki og einstaklingar styrkt starf Konukots með ýmsum hætti. Þær gjafir hafa verið nýttar til að fjárfesta og búa betur að starfsemi Konukots.  Marín Þórsdóttir afhendir hér Kristínu Pálsdóttur lyklavöldin að Konukoti ásamt öllum húsbúnaði sem fylgja mun Konukoti, starfseminni til heilla.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast