fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
433Sport

Kristján Óli kallar eftir því að Óskar Hrafn kæli Anton – „Áran yfir þessum gæa er núll“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 11. september 2020 12:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Óli Sigurðsson sérfræðingur Dr. Football og fyrrum kantmaður Breiðabliks kallar eftir því að Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari liðsins setji Anton Ara Einarsson markvörð liðsins á bekkinn.

Anton Ari er á sínu fyrsta ári í marki Breiðabliks en hefur mátt þola gagnrýni fyrir frammistöðu sínar. Anton Ari stóð vaktina í marki Blika í 4-2 tapi gegn KR í gær.

,,Ég væri löngu búinn að setja manninn í smá kælingu, það eru allir leikmenn sem hafa nánast dottið út úr liðinu nema Mikkelsen og þessi markvörður. Hann varði tvö skot í gær, annað var varið beint út í teig og skorað úr frákastinu,“ sagði Kristján Óli í Dr. Football í dag.

Kristján segist ekki þola það að sjá Anton á velli, hann segir hann tala lítið og að Anton stýri vörninni ekki. ,,Áran yfir þessum gæa er núll, varnarmennirnir treysta honum ekki í sekúndu. Hann stýrir ekki vörninni, hann er mállaus. Ef ég hata eitthvað við markvörð er það málleysi.“

Hjörvar Hafliðason fyrrum markvörður telur að Óskar gæti skipt um markvörð,,Ég get tekið undir það að Óskar gæti farið að skoða þessa stöðu í næsta leik.“ Brynjar Atli Bragason og Gunnleifur Gunnleifsson eru í herbúðum félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona