fbpx
Fimmtudagur 08.maí 2025
Fréttir

Vill að Kirkjuþing áminni biskup – „Ósmekkvísi og trúarbrenglun“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 8. september 2020 09:09

Samsett mynd DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Gunnarsson, fyrrverandi sóknarprestur í Holti, leggur til að Æðsta stofnun Þjóðkirkjunnar, Kirkjuþing, veiti biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur, áminningu. Tilefnið er birting Biskupsstofu og fræðslunefndar kirkjunnar á mynd af Jesú Kristi með brjóst, varalituðum, og regnbogi í baksýn, en myndin er opnumynd á Facebook-síðu Kirkjunnar.

Kirkjuþing kemur saman þann 10. september.

Halldór tekur málið fyrir í stuttum pistli í Morgunblaðinu í dag. Halldór krefst þess jafnframt að myndin verði afturkölluð. Þá krefst hann þess að samskiptastjóra Þjóðkirkunnar, Pétri G. Markan, verði sagt upp störfum.

Pistill Halldórs er svohljóðandi:

„Æðsta stofnun þjóðkirkjunnar, kirkjuþing, kemur saman 10. september nk. til að samþykkja nýja skipan kirkjumála í framhaldi af viðbótarsamningi ríkisins og kirkjunnar frá 6. september 2019.

Af því tilefni skora ég á þingfulltrúa að taka til afgreiðslu með afbrigðum á þingsköpum þá ósmekkvísi og trúarbrenglun, sem fræðslunefnd þjóðkirkjunnar á biskupsstofu hefur sett fram sem nýtt efni sunnudagaskólans, með forsíðumynd af Kristi í litum regnbogans, sem varalitaðri konu með brjóst!

Ekkert getur bætt þessa framkomu Biskupsstofu og fræðslunefndar kirkjunnar nema afdráttarlaust samþykki kirkjuþings um að afturkalla þetta efni sunnudagaskóla kirkjunnar og veita biskupi Íslands áminningu um þessa framkvæmd, með ósk um að fræðslunefnd þjóðkirkjunnar og samskiptastjóra hennar, sem í fjölmiðlum hefur rökstutt ákvörðunina, verði sagt upp.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“
Fréttir
Í gær

Fundu skaðleg efni í pólsku skyri sem auglýst er sem íslenskt – Sveppaeitur og klórat

Fundu skaðleg efni í pólsku skyri sem auglýst er sem íslenskt – Sveppaeitur og klórat
Fréttir
Í gær

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“
Fréttir
Í gær

Handtekinn eftir húsbrot og líkamsárás

Handtekinn eftir húsbrot og líkamsárás