fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Smit á Hlíf – 19 eldri borgarar í sóttkví og heimsóknarbann

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 22. ágúst 2020 22:58

Hlíf Mynd/isafjordur.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

COVID-19 smit hefur greinst hjá íbúa á Hlíf, íbúðum fyrir eldri borgara á Ísafirði. Nítján íbúar eru vegna þessa komnir í sóttkví og eru 54 aðrir íbúar hvattir til að halda kyrru fyrir og fara með ítrustu gát næstu vikur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.

„54 aðrir íbúar bæði á Hlíf 1 og Hlíf 2, hafa verið hvattir til að halda kyrru fyrir, fara að ítrustu gát næstu vikur, viðhafa smitgát og fylgjast sérstaklega með mögulegum einkennum,“ segir í tilkynningu.

Búið er að hringja í alla íbúa og sótthreinsa sameiginlega fleti.  Samkvæmt tilkynningu er gestum og aðstandendum íbúa ekki heimill aðgangur að Hlíf fyrst um sinn.

„Hægt verður að koma nauðsynjum til íbúa með milligöngu starfsmanns á vegum Ísafjarðarbæjar. Breytingar á þessu fyrirkomulagi verða tilkynntar sérstaklega.

Talsverðar sóttvarnarráðstafanir hafa verið viðhafðar á Hlíf upp á síðkastið, meðal annars með hólfaskiptingu á matmálstímum. Þetta takmarkar verulega fjölda þeirra sem fara þurfa í sóttkví.

Ekki er ljóst hvaðan smitið barst en unnið verður áfram að smitrakningu. Smitvarnaaðgerðir verða endurmetnar eftir því sem smitrakningu vindur fram.

Öllum sem finna til minnstu einkenna er hér eftir sem hingað til bent á að hafa samband við heilsugæsluna í síma 450 4500 og fara í sýnatöku.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast