Þegar um 11 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik skoraði leikmaður Fram, Hlynur Atli Magnússon, sjálfsmark og kom ÍBV því yfir. Um tíu mínútum síðar skoraði þó leikmaður ÍBV, Bjarni Ólafur Eiríksson, einnig sjálfsmark og jafnaði því leikinn. Tómas Bent Magnússon kom ÍBV síðan aftur yfir með marki á 36. mínútu en Þórir Guðjónsson jafnaði metin fyrir Fram rétt fyrir hlé.
Snemma í seinni háflleik náðu þeir Felix Örn Friðriksson og Gary Martin báðir að skora og komu því ÍBV í tveggja marka forystu. Á 59. mínútu gerði Fram þrefalda skiptingu sem átti eftir að reynast þeim vel en þeir Tryggvi Snær Geirsson og Aron Snær Ingason komu inn á í skiptingunni. Þeir skoruðu báðir mark, Tryggvi á 71. mínútu og Aron á lokamínútunum og endaði leikurinn með 4-4 jafntefli.