Þetta sagði Þórir Hálonarsson, fyrrum framkvæmdarstjóri KSÍ og íþróttastjóri Þróttar Reykjavík, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 977. „Þá er ég að tala um bari, skemmtistaði og slíkt,“ sagði Þórir enn fremur.
Eins og greint hefur verið frá þá hefur öllum knattspyrnuleikjumverið frestað til að minnsta kosti 5. ágúst auk þess sem heilbrigðisyfirvöld hafa beðið um að æfingum með snertingu verði frestað til 13. ágúst. Er þetta gert vegna kórónuveirufaraldursins en aukin smit hafa verið að greinast á Íslandi að undanförnu. Hámarksfjöldi fólks sem kemur saman er nú aftur komin niður í 100 manns auk þess sem tveggja metra reglan er komin í fullt gildi á ný.
„Við látum hins ekkert í okkur heyra, við erum bara að bíða eftir einhverjum tilmælum og hinkrum eftir því, manni finnst sumt af þessu vera óskiljanlegt miðað við annað sem er í gangi í samfélaginu,“ sagði Þórir.