fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Heitir pottar seldust upp á 20 mínútum í Hagkaup – röð fyrir utan í morgun

Tobba Marinósdóttir
Miðvikudaginn 24. júní 2020 11:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Röð hafði myndast í morgun fyrir utan Hagkaup í Kringlunni og Smáralind eftir að verslunin auglýsti á samfélagsmiðlum að von væri á heitum pottum. „Í upphafi Covid fundum við fyrir miklum áhuga á margskonar afþreyingu yfir heimilin, “ segir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa.

Hann nefnir þá helst mikla söluaukningu á púsluspilum, sala á garni tók mikinn kipp og reiðhjól seldust upp mun fyrr en áætlað var.“ Þegar leið á faraldurinn fór sala á heitum pottum að aukast til muna.  Fór svo á endanum að þeir seldust allir upp í byrjun apríl, magn sem við höfðum gert ráð fyrir að myndi endast út sumarið.“

Það var því ákveðið að panta meira og kom fyrsta sendingin í verslanir í morgun.  „Við létum vita á samfélagsmiðlum að von væri á sendingunni í búðir og þegar menn mættu til vinnu í morgun voru raðir fyrir utan verslanirnar sem fengu magnið í þessari sendingu, Hagkaup Kringlunni og Hagkaup Smáralind.  Allir pottarnir seldust  upp á 20 mínútum, eitthvað sem við höfum aldrei áður upplifað.“

Það eru tvær aðrar stærri sendingar sem eru á leiðinni  og munum við því reyna allt sem við getum til að bregðast við þessari miklu þörf landans fyrir heita potta.  Það eru breyttir tímar í kjölfar Covid,“ segir Sigurður en 30 pottar voru í fyrri sendingunni og von er á 200 í viðbót.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast