Nýverið opnuðu verslanirnar Extra í Keflavík og á Akureyri. Verslanirnar verða opnar allan sólarhringinn og brydda uppá nýjung í rekstri svokallaðra klukkubúða hér á landi – þær munu bjóða uppá Costco verð á 20 vörum. Meðal annars munu klósetpappír, eldhúsrúllur, þvottaefni, gosdrykkir og ávaxtasafi standa íbúum til boða á sömu kjörum og í Costco og þannig færa Costco verðin út fyrir höfuðborgina.
Innreið Costco á íslenskan markað hafði djúp og víðtæk áhrif eins og frægt er, en áhrifin náðu þó ekki langt út fyrir höfuðborgina Því stendur nú til að breyta segir Sigurður Karlsson forstjóri Basko rekstraraðila Extra. Fyrir rekur Basko verslanirnar 10/11, Kvikk on the go við eldsneytisstöðvar Orkunnar og veitingstaðinn Bad Boys Burgers & Grill í Kópavogi.
Sala til Samkaupa kveikjan að rekstri Extra
Að sögn Sigurðar sat Basko uppi með verslanirnar á Akureyri og í Keflavík þegar Basko seldi verslanir 10/11 og Iceland til Samkaupa árið 2018. Samkeppniseftirlitið stöðvaði sölu verslananna í Keflavík og á Akureyri. Sigurður segir vörumerkið Extra sé svar við þeirri stöðu. Ekki standi til að selja þessar tvær staðsetningar þó það hafi áður verið ætlunin. „Basko gengur framar vonum og hlakkar okkur til að halda áfram á þessari vegferð. Við erum að bjóða alvöru vörur úr Costco á alvöru verðum til viðbótar við hefðbundna þjónustu og viðtökurnar verið frábærar hingað til.“
Klukkubúðir hafa átt undir högg að sækja á Íslandi undanfarið og þær 10/11 búðir sem eftir standa séu einungis þrjár, ein á Laugavegi, önnur á Austurstræti og sú þriðja á Keflavíkurflugvelli. Allt eru þetta staðir þar sem ætla mætti að ferðamenn séu uppistaða viðskiptavina. „Þetta eru vissulega dýrar búðir,“ segir Sigurður, „en rekstrarkostnaður á þessum stöðum er líka umtalsverður. Við þurfum talsverða öryggisgæslu í miðbænum um helgar og staðsetningin dýr.“ Launakostnaður vegur einnig þungt.
Extra í miðbæinn
Þriðja Extra búðin opnar senn á Barónsstíg að horni Hverfisgötu þar sem 10/11 var áður og færast Costco verðin þá í miðbæinn í fyrsta sinn. Aðspurður hvort Extra hafi augun opin fyrir fleiri staðsetningum á landsbyggðinni segir Sigurður það ekki standa til í augnablikinu en hann og hans fólk séu alltaf með augun opin.