fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Svona myndi samfélagslegi sáttmálinn líta út – „Þetta er nauðsynlegt“

Jón Þór Stefánsson
Sunnudaginn 26. apríl 2020 14:36

Þríeykið. Mynd: Fréttablaðið/Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn lagði til að Íslenska þjóðin geri samfélagssáttmála á blaðamannafundi vegna COVID-19 sem fer fram núna. Hann sagði að það væri mikilvægt til að að fá ekki bakslag.

„Við höfum verið að velta fyrir okkur einhverju sem við getum kallað samfélagslegan sáttmála. Það er mikilvægt að horfa til þess sem þarf að gera í framhaldinu svo við missum þetta ekki frá okkur og fáum mikið bakslag,“

„Samfélagslegur sáttmáli þar sem við höldum öll í heiðri. sáttmáli sem væri við gildi í vor og fram á sumarið. Sáttmáli sem við verðum öll saman í, öll þjóðin saman, allt samfélagið okkar.“

Þetta er það sem að Víðir sagði að yrði í þessum svokallaða samfélagslega sáttmála:

  1. Að sinna handþvotti vel og sótthreinsa og spritta á okkur hendurnar.
  2. Vernda viðkvæma hópa og gefa fólki kost á tveggja metra fjarlægð.
  3. Ef við fáum einkenni þá verðum við heima og tölum við lækni.
  4. Þeir sem eru veikir fara í einangrun og þeir sem fá skilaboð um að fara í sóttkví fara í sóttkví.
  5. Halda áfram að veita þeim veiku góða heilbrigðisþjónustu.
  6. Meðtaka fréttir frá traustum ritstýrðum fréttamiðlum.
  7. Vera skilningsrík gagnvart þeim sem misstíga sig og leiðbeina þeim kurteisislega.
  8. Vera góð við hvort annað og skilja engan út undan.

Þá sagði Þórólfur sóttvarnarlæknir að samfélagslegur sáttmáli gæti verið nauðsynlegur og að það væri mikilvægt fyrir alla að taka þátt.

„Samfélagslegur sáttmáli um hvernig við ætlum að hegða okkur og hvað við ætlum að gera núna á næstu vikum og mánuðum. Þetta er nauðsynlegt að gera allt saman til að undirbúa okkur betur undir faraldra framtíðarinnar því að við munum fá aftur faraldra, kannski ekki alveg svona en þeir verða einhvern veginn öðruvísi og við þurfum að fá líka að vera vel í stakk búin til að bregðast við. Ég held að við getum miðlað ýmsu til alþjóðasamfélagsins um okkar reynslu sem gæti verið gagnlegt fyrir aðra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast