fbpx
Miðvikudagur 10.september 2025
Fréttir

Yfir 80 milljónir söfnuðust í Á allra vörum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 24. september 2017 09:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söfnunarþættinum Á allra vörum sem fram fór á Rás 2 í gær og á RÚV og Sjónvarpi Símans í kvöld, lauk undir miðnætti. Ríflega 80 milljónir söfnuðust, bæði með frjálsum framlögum og sölu á Á allra vörum varasettum frá Benecos. Málefni ársins að þessu sinni var bygging nýs húsnæðis fyrir Kvennaathvarfið.

„Við erum í skýjunum með árangurinn. Þetta þýðir að góður grundvöllur er nú fyrir byggingu húsnæðis þar sem konur og börn þeirra geta búið í allt að 2 ár meðan verið er að fóta sig aftur út í lífið“, segir Elísabet Sveinsdóttir
Þær stöllur sem standa að Á allra vörum vilja koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem tóku þátt í átakinu og undirbúningi þess undanfarna mánuði.

„Við hefðum ekki verið á allra vörum án stuðnings alls þess fólks sem hjálpaði til að ná þessum magnaða árangri, Landsbankans, RÚV, Pipars auglýsingastofu, Þóru Helga leikstjóra og SKOT productions, Símans og svona mætti lengi telja. Það er með ólíkindum hvað hægt er að gera þegar allir leggjast á eitt“ segir Gróa Ásgeirsdóttir.

Örfá varasett eru enn fáanlega á sölustöðum átaksins auk þess sem söfnunarnúmerin 903- 1502, 903-1505 og 903-1508, verða opin í viku til viðbótar. „Við erum óendanlega þakklátar fyrir stuðning þjóðarinnar allrar, Heilsu sem flytur inn Benecos varasettin og allra söluaðilanna sem selt hafa varasettin án þess að taka söluþóknun. Það eru ekki til nóg stór orð til að lýsa þakklæti okkar“ segir Guðný Pálsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Halla óvenju hvöss í þingsetningarræðunni

Halla óvenju hvöss í þingsetningarræðunni
Fréttir
Í gær

Flugstjóri telur skjöl varpa nýju ljósi á eitt mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar – „Ótrúleg tilviljun“

Flugstjóri telur skjöl varpa nýju ljósi á eitt mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar – „Ótrúleg tilviljun“