fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Bikarúrslitaleikurinn virðist hafa borið COVID-19 til Vestmannaeyja

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 20. mars 2020 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bikarúrslitaleikur ÍBV og Stjörnunnar þann 7. mars var fjölmenn og stemningsrík íþróttahátíð þar sem Vestmannaeyingar fögnuðu sigri. Í sjónvarpinu mátti sjá hunduð ef ekki þúsundir manna faðmast og kyssast í fagnaðarlátunum. Nú bendir margt til að COVID-veiran hafi borist til Vestmannaeyja eftir þennan leik.

Í frétt á vef RÚV segir:

„Grunur leikur á að rekja megi einhverjar af COVID-19 sýkingunum í Vestmannaeyjum til bikarúrslitaleiks ÍBV og Stjörnunnar í Laugardalshöll fyrr í þessum mánuði. Þetta segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, hjá ríkislögreglustjóra. Einn úr þjálfaraliði Stjörnunnar greindist með COVID-19 tæpri viku eftir leikinn.
„Það er allavega einn möguleiki sem er verið að skoða, hvort þetta tengist þeim leik,“ segir Víðir í samtali við fréttastofu.“
Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur birt fréttatilkynningu vegna málsins. Þar segir að það eina sem tengi saman mörg COVID-19 tilfelli í Vestmannaeyjum séu íþróttakappleikir í Reykjavík. Um er að ræða tíu staðfest smit með þennan sameiginlega snertiflöt. Þá kemur fram að eitt tilvik tengist íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum og hefur henni verið lokað tímabundið. Þá segir:
„Um hundrað manns hafa þurft að fara í sóttkví í kringum þessi 10 staðfestu tilfelli og auk þess er talsverður fjöldi fólks í sóttkví vegna dvalar á áhættusvæðum. Loka hefur þurft leikskólanum Sóla tímabundið og í gærkvöldi var ákveðið að 7. bekkir Grunnskóla Vestmannaeyja væru heima í dag. Ástæðan fyrir því var að nemendur þar tengjast tilfellum og auk þess hefur verið óvenju mikið um veikindi í þessum árgangi. Sýni voru tekin frá öllum nemendum sem eru með einkenni og niðurstöður sýna sem tekin voru í gær eru neikvæðar. Sýni voru tekin hjá öðrum nemendum með einkenni í árgangnum í dag og er niðurstöðum þeirra að vænta í kvöld og á morgun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“