fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Bregðast við COVID-19 með frírri heimsendingu á húsgögnum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 16. mars 2020 12:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá og með deginum í dag býður Húsgagnahöllin upp á fría heimsendingu á öllu því sem viðskiptavinir kaupa hjá versluninni og senda þeim að kostnaðarlausu hvert sem er innanlands. Þetta gildir bæði um vörur sem keyptar eru í gegnum vefverslunina www.husgagnahollin.is eða í verslunum Húsgagnahallarinnar í Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði.

„Með þessu mætum við þörfum viðskiptavina okkar á þessum sérstöku tímum. Fólk er alla jafna meira heima núna en áður og við höfum heyrt og séð að margir eru að nýta tímann í að gera fallegt og hreiðra enn betur um sig. Tiltektir eru víst málið þessa dagana og þeim fylgja oft endurnýjun og breytingar,“ segir Egill Fannar Reynisson,  einn eigenda Húsgagnahallarinnar.

Fría heimsendingin verður í boði að minnsta kosti út marsmánuð en staðan verður þá endurmetin með mögulegt framhald í huga.

„Landsmanna vegna vonumst við auðvitað til þess að ástandið batni fljótt. Þeir sem þurfa þó að vera heima á næstunni geta allavega reitt sig á þjónustu okkar og við óskum þess að fólk fari vel með sig og njóti stundanna heima fyrir. Máltækið Heima er best hefur líklega aldrei átt betur við,“ segir Egill enn fremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“