Þórunn undirstrikaði mikilvægi þess að hjálpa þeim sem hafa það erfitt í faraldrinum. Eldri borgarar og aðrir sem eru í áhættuhópum eiga það til að einangrast í svona ástandi og því er mikilvægt að vera í góðu sambandi við umheiminn, vini og ættingja. Þórunn benti á að það geta allir hringt í hjálparsíma Rauða Krossins, í síma 1717, og spjallað þar. Einnig hvatti Þórunn eldri borgara til að kynna sér tæknina til að geta átt í betra sambandi við aðra. „Við megum ekki setjast niður og gera ekki neitt, við verðum að nota tímans til góðs,“ sagði Þórunn.
Þá nefndi hún einnig að það þurfa allir að passa sig að hreyfa sig á meðan faraldurinn er í gangi. Ef fólk er fast heima hjá sér þá þarf það engu að síður að huga að því að hreyfa sig. Einnig þarf fólk að passa matarræðið en Þórunni fannst ekki gott að sjá matarkörfur landsmanna í fréttum í gær. Í sumum þeirra var lítið annað en „ruslfæði“ eins og Þórunn orðaði það.
Þrátt fyrir að ábendingar Þórunnar hafi aðallega átt við eldri borgara landsins þá er þetta eitthvað sem allir geta tekið til sín. Einnig er mikilvægt að fólk sem er í betri aðstöðu en aðrir, hjálpi þeim sem eiga erfitt. Þórunn benti á það að í Danmörku er kominn upp hópur á Facebook þar sem fólk býðst til að hjálpa þeim sem þurfa hjálp í faraldrinum. Hvort sem það sé að versla í matinn eða bara hringja og spjalla um lífið og tilveruna.