fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Þriðji framhaldsskólinn með COVID-19 smit – Níutíu nemendur og sex starfsmenn í sóttkví

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 14. mars 2020 10:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kennari í Fjölbrautaskóla Suðurlands hefur verið greindur með COVID-19. Kom þetta fram í tölvupósti sem Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSu, sendi á nemendur og forráðamenn í gær. Sunnlenska greindi frá.

Kennarinn sem um ræðir veiktist fyrr í vikunni en kom ekki í skólann síðari part vikunnar. FSu var opinn í gær en vegna samkomubannsins verður skólanum lokað næstu fjórar vikur. Almannavarnir vinna nú að því að rekja smitið og hafði skólinn samband við þá aðila sem kennarinn hafði samskipti við í vikunni.

90 nemendur og 6 starfsmenn í skólanum eru því nú komnir í sóttkví eftir greiningu smitsins. Kom þetta fram í öðrum tölvupósti sem Olga sendi í gærkvöldi. Í þeim pósti ítrekar Olga mikilvægi þess að þeir sem verða varir við einkenni COVID-19 hafi samband við heilbrigðisstarfsmenn á næstu heilsugæslu eða í síma 1700.

FSu er þriðji framhaldsskólinn á landinu sem grein hefur frá því að þar hafi COVID-19 smit komið upp. Fyrr í vikunni var greint frá því að starfsmaður í Borgarholtsskóla hafi fengið veiruna og nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð sömuleiðis. Samkomubannið tekur gildi á mánudaginn og verður framhaldsskólum landsins lokað næstu fjórar vikur vegna þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“