fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Fermingarathöfnum Siðmenntar frestað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 13. mars 2020 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í ljósi þess að yfirvöld hafa sett á samkomubann til 12. apríl n.k. hefur stjórn Siðmenntar ákveðið að fresta fermingarathöfnum þeim sem áttu að eiga sér stað í Reykjavík 5. apríl og 26. apríl og á Hvammstanga 4. apríl.

Í tilkynningu frá félaginu segir að fermingarathöfnin eigi að vera gleðilegur viðburður í lífi hvers barns og erfitt sé að skapa slíkt andrúmsloft við þessar aðstæður, auk þess sem að takmarkanir hafa veruleg áhrif á stærð og umfang hverrar athafnar.

Í tilkynningunni segir enn fremur:

„Fermingarbörnum og foreldrum þeirra verða boðnar nýjar dagsetningar í sumar og haust, eða sá kostur að velja heimafermingar í stað hópfermingarathafnar í vor. Stjórn og starfsfólk Siðmenntar munu fylgjast vel með stöðunni og taka ákvarðanir varðandi athafnir á landsbyggðunum eftir því sem staðan skýrist.

Í stað fermingarathafna á höfuðborgarsvæðinu í apríl verður hægt að velja eftirfarandi möguleika:

  • 17. júní á höfuðborgarsvæðinu
  • 29. ágúst í Háskólabíó
  • 30. ágúst í Háskólabíó
  • 25. október á höfuðborgarsvæðinu
  • Heimafermingu, staður og stund að eigin vali

Nánari upplýsingar um áhrif COVID-19 á fermingarathafnir Siðmenntar er að finna á vef félagsins, en vefurinn verður uppfærður eftir því sem staðan skýrist: http://sidmennt.is/covid-19/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“