fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Lögreglan varar við COVID-19 svindli

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 13. mars 2020 14:35

Höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svikahrappar og svindlarar eru komnir á kreik og þykjast bjóða eftirsóttan varning í kórónufaraldrinum, t.d. öndunarmaska og handspritt. Er reynt að fá fólk til að greiða fyrir vörur sem aldrei eru afhentar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu um málið:

Blekkingar og svik í tengslum við Covid-19

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk sérstaklega við svikum sem eru að eiga sér stað um þessar mundir á netinu og í gegnum síma. Alþjóðalögreglan (INTERPOL) og Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) hafa einnig tilkynnt um svik sem eru að eiga sér stað út um allan heim, þar sem verið er að setja upp svikasíður eða hringja í fólk og það blekkt til að gefa upp upplýsingar eða greiða fyrir vörur sem ekki eru til.

Í tengslum við Covid-19 er verið að reyna að svindla á fólki með vörur sem mikil eftirspurn er eftir. Þetta eru þá vörur eins og öndunarmaskar, handspritt o.fl. í þeim dúr.
Fólk er beðið um að vera á varðbergi vegna slíkra blekkinga og svika, en nú þegar hefur verið tilkynnt um slíkar blekkingar hér á landi. Þetta á t.d. við um Instagramsíðu þar sem fólk var blekkt að Landlæknisembættið væri að hafa samband gegnum þá síðu.

Rakningarteymi almannavarna er að hafa samband við fólk um þessar mundir vegna Covid-19 veirunnar, en fólk á að hafa í huga að það er aldrei spurt um lykilorð, notendanöfn eða greiðsluupplýsingar í þeim samtölum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“