fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Íslenskir karlmenn leiðast út í dóp vegna áfalla: „Logið að manni allskonar hlutir eins og tíminn græðir öll sár…það er bara bullshit“

Auður Ösp
Laugardaginn 14. mars 2020 09:00

María vill opna umræðuna um sjálfsvíg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég notaði eiturlyfin bara til þess að líða vel á móti vanlíðaninni. Ástæðan er einfaldlega sú að ég kunni ekki neina aðra leið. Og bara svona óvart finn þessa leið,“ segir ungur íslenskur karlmaður sem leiddist út í neyslu fíkniefna í kjölfar síendurtekinna áfalla á yngri árum, svo sem vanrækslu í æsku, einelti og ofbeldi á vinnustað. Hann segir neysluna vera beina afleiðingu af þessum áföllum og að skortur sé á skilningi í þjóðfélaginu.

Skortur er á skilningi meðal fagfólks og í samfélaginu um að stundum sé um að ræða undirliggjandi orsök þegar kemur að fíkniefnaneyslu karlmanna, eins og áföll. Svo virðist sem skortur sé á úrræðum fyrir karlmenn sem lent hafa í áföllum í æsku svo hægt sé að vinna úr afleiðingum þeirra. Einnig skortir markvissa stefnu til að aðstoða þá sem nota fíkniefni til að slá á andlega vanlíðan.

Þetta kemur fram í niðurstöðum Margrétar Tórshamar Georgsdóttur en meistaraprófsritgerð hennar við heilbrigðisvísindasvið HA fjallaði um reynslu karlmanna sem hafa verið í fíkniefnaneyslu vegna áfalla í æsku.

Í tengslum við rannsóknina ræddi Margrét við sjö karlmenn sem höfðu allir misnotað fíkniefni á einhverjum tímapunkti, en eru komnir á beina braut í dag. Allir urðu þeir fyrir áföllum í æsku á borð við ofbeldi af hálfu foreldra, afskiptaleysi foreldra, dauðsfall í fjölskyldu, dauðsfall náins vinar, einelti, nauðgun, vanrækslu í æsku, ofbeldi á vinnustað og ofbeldi af hálfu eldra fólks.

Flestir þeirra höfðu lent í fleiri en einu áfalli og höfðu áföllin mikil áhrif á andlega líðan þeirra og hjá flestum fylgdu afleiðingarnar þeim fram á fullorðinsár. Margir reyndu að leita leiða til að líða betur en áttu erfitt með að finna eitthvað sem virkaði. Karlarnir prófuðu sig margir áfram með fíkniefni og hjá mörgum þeirra slokknaði á þeim slæmu tilfinningum sem þeir fundu fyrir og þeim leið vel það kvöldið. Þetta orsakaði að þeir byrjuðu að leita í fíkniefni til að líða betur.

Fíkniefnin voru bjargráð

Í niðurstöðum kemur fram að allir mennirnir upplifðu fíkniefnaneyslu sína sem afleiðingu af áföllunum sem þeir urðu fyrir í æsku. Með neyslu upplifðu þeir létti, dofa eða flótta frá ýmiss konar vanlíðan.

Einn úr hópnum lýsir því hvernig áfengi og kannabis hjálpuðu honum að gleyma slæmum minningum úr æsku.

„Númer eitt, tvö og þrjú það er það fyrsta sem mér dettur í hug. Bara deyfa sig nógu mikið niður til þess að þurfa ekki að muna hlutina þann klukkutímann.“

Annar úr hópnum lýsir því þannig að eftir mörg ár af vanlíðan hafi fyrsta víman hans verið „það frábærasta sem hann lenti í á ævinni.“ Hann hafi ekki vitað að það væri hægt að „líða vel án þess að hafa neitt fyrir því að líða vel“.

„Það var svona … þú veist, alveg sama hvort það var að fara á fyllerí eða hvað það var, maður gat bara skrapað saman smá pening og keypt sér það að vera hress …“

Strákar eiga að vera harðir

Mennirnir sem rætt var við lýstu því einnig hvernig umhverfisáhrif og ímynd samfélagsins af „alvöru karlmönnum“ hefði haft áhrif á þá.

Einn úr hópnum bendir á að það sé ekki beint pressa á karlmenn að tala ekki um tilfinningar eða andlega vanlíðan heldur sé það frekar þannig að það er „enginn að ýta undir að þeir geri meira af því.“ Bendir hann á að mörg samtök séu til fyrir kvenfólk sem hafi lent í alls kyns áföllum, en ekki mikið um þannig samtök fyrir karlmenn.

„Ég á ansi mörg þannig áföll sem að ég hef aldrei unnið úr … maður elst upp í svona menningarheimi þar sem strákar og karlar eiga bara að vera harðir naglar og það er í rauninni bara logið að manni allskonar hlutir eins og tíminn græðir öll sár … það er bara bullshit … manni er sagt að harka af sér og hætta að hugsa um þetta og vera ekki að tala um þetta og eitthvað svoleiðis … og þá í staðinn er maður aldrei að vinna úr hlutunum sem eru stundum bara það að fá að tala um það sko,“ segir annar.

Annar maður úr hópnum tekur í sama streng:

„Það var ekkert svalara í heiminum fyrir mér heldur en þú veist dúddar eins og Arnold Schwarzenegger og þú veist … hann fór ekkert að grenja … Það var minna sko að þú áttir ekki að gera þetta heldur að það var bara þú veist … harðir karlar gera þetta ekki skilurðu. Stórir strákar fara ekki að grenja.“

Vandamál um allan heim

Í niðurstöðum Margrétar kemur fram að að það virðist sem ákveðin þöggun ríki í samfélaginu um að mögulega sé fíkniefnaneysla afleiðing af áföllum. Vöntun sé á þeirri nálgun í meðferðarúrræðum hér á landi til að vinna með rót vandans, en ekki aðeins neysluna sjálfa.

„Það kom á óvart í niðurstöðum rannsóknarinnar hversu algengt það var að karlarnir hefðu lent í fleirum en einu áfalli í æsku. Flestir höfðu þeir lent í tveimur eða fleiri áföllum sem fylgja þeim enn til dagsins í dag. Einnig kom fram hversu mikilvægt körlunum fannst vera að fá góða sálræna þjónustu til að vinna úr áföllunum samhliða því að vera í fíknimeðferð. Þeim fannst ekki nóg um slíka þjónustu þar sem í fíknimeðferð er nær eingöngu einblínt á fíknina sjálfa, ekki mögulegar ástæður fyrir fíkninni, áföllin,“ ritar Margrét.

Þá bendir Margrét einnig á að ljóst sé að það þurfi að gæta sérstaklega að fólki sem lendir ungt í áföllum, svo það þurfi ekki að bera afleiðingar áfallanna á herðum sér langt fram á fullorðinsár, ef ekki alla ævi. Svo virðist sem einnig sé skortur á upplýsingum um úrræði fyrir karlmenn sem lent hafa í áföllum í æsku svo hægt sé að vinna úr afleiðingum áfallsins.

„Margir þekkja til einstaklinga eða aðstandenda þeirra sem látið hafa lífið vegna óhóflegrar neyslu fíkniefna. Því miður er þetta vandamál ekki síður á Íslandi en annars staðar. Undanfarin ár hafa sjálfsvíg karlmanna verið áberandi í fréttum hér á landi og er nokkuð ljóst að eitthvað þarf að gera. Sú staðreynd að einstaklingar grípi til fíkniefna til þess eins að líða betur andlega er sorglegur raunveruleiki og mikilvægt er að koma til móts við þá sem finnst þeir ekki hafa aðra kosti. Þegar fíkniefnaneysla er orðin að örvæntingarfullri leið til að líða betur er augljóst að neyslan snýst ekki lengur um fíkniefnin. Engri manneskju á að líða eins hennar val sé annaðhvort að deyfa sig nógu mikið andlega til að finna ekki til eða að enda líf sitt,“ segir enn fremur í niðurstöðum rannsóknarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“