fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Yfirheyrður þrisvar á innan við klukkutíma: „Það var komið fram við mig eins og glæpamann“

Auður Ösp
Föstudaginn 13. mars 2020 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarískur blaðamaður segist hafa orðið fyrir alvarlegri kynþáttamismunun af hálfu starfsmanna á Keflavíkurflugvelli í október síðastliðnum. Maðurinn var leiðinni heim til New York eftir stutt frí á Íslandi. Fullyrðir hann að hann hafi þurft að sæta yfirheyrslu og niðurlægjandi rannsókn eingöngu vegna kynþáttar síns, en maðurinn er af rómönskum uppruna. Málið er til rannsóknar hjá Samgöngustofnun Bandaríkjanna.

Í samtali við DV segist maðurinn ekki vilja láta nafns síns getið því mál hans sé enn til meðferðar hjá Samgöngustofnun Bandaríkjanna (DOT).

 „Ég hafði verið í fríi á Íslandi, ásamt föður mínum. Hann var að fljúga frá Suður-Ameríku til Spánar til að heimsækja ættingja og við ákváðum að hittast á miðri leið, á Íslandi, þar sem við höfðum ekki hist í tvö ár. Við hittumst á Keflavíkuflugvelli og áttum fjóra daga saman á Íslandi,“ segir maðurinn en hann kveðst hafa verið búsettur í New York síðan árið 2007. Hann hafi ferðast víða um heim allt frá því hann var barn og heimsótt allar heimsálfur.

Óviðeigandi spurningar

Maðurinn átti bókað flug frá Íslandi til New York þann 4. október síðastliðinn.

„Ég var að bíða eftir að innrita mig í flug hjá United Airlines á Keflavíkurflugvelli þegar karlmaður kom upp að mér, án þess að kynna sig nokkuð, en hann átti víst að vera starfsmaður á vegum United. Hann fór að spyrja mig alls kyns spurninga, þar á meðal „hvort ég væri ánægður í starfi.“ Algjörlega óviðeigandi, og þetta átti sér stað fyrir framan aldraðan föður minn, sem var á leið í flug með öðru flugfélagi.

Eftir að hafa spurt mig fjölmargra spurninga, sem aðallega tengdust einkalífi mínu og starfi leyfði starfsmaðurinn mér loksins að tékka mig inn.“

Maðurinn segir að stuttu seinna, við brottfararhliðið, hafi síðan annar starfsmaður nálgast hann og byrjað að yfirheyra hann í návist annarra farþega.

„Síðan tjáði kvenkyns starfsmaður mér að ég hefði verið valinn af handahófi í nánara eftirlit. Þetta var algjör lygi, þar sem ég hafði séð hana og hinn starfsmanninn benda í átt að mér og gefa hvort öðru merki á mjög augljósan hátt, beint fyrir framan mig.“

Maðurinn segist því næst hafa verið yfirheyrður í þriðja skiptið á innan við klukkutíma.

„Ég var auk þess beðinn um að tæma vasana og þá voru skórnir mínir, sokkarnir, fartölvan mín, jakkinn, beltið og hendurnar á mér rannsakaðar, fyrir framan hina farþegana. Það var komið fram við mig eins og glæpamann, af engri ástæðu. Eftir þessa niðurlægingu fékk ég loksins að fara um borð í vélina og ég tók eftir því að sumir af farþegunum voru tortryggnir í minn garð,“ segir maðurinn og bætir við að flugferðin heim hafi verið „hræðileg.“

Buðu 750 dollara í sáttagreiðslu

Maðurinn kveðst hafa sent kvörtunarbréf til United Airlines um leið og hann var kominn heim til New York. Þá tilkynnti hann málið einnig til Samgöngustofnunar Bandaríkjanna og bandarískra flugyfirvalda (TSA).

Í svarbréfi United Airlines, sem DV hefur undir höndum, kemur fram að starfsmennirnir sem höfðu afskipti af manninum þennan dag hafi ekki verið á vegum flugfélagsins, heldur á vegum samstarfsaðila þess á Keflavíkurflugvelli.

Maðurinn segist þá hafa sent tölvupóst á þjónustufulltrúa Isavia og í kjölfarið fengið þau svör að öryggiseftirlit við innritun sé krafa af hálfu TSA, fyrir allt flug til Bandaríkjanna. Í bréfinu kemur einnig fram að rætt hafi verið við stöðvarstjóra United Airlines á Keflavíkurflugvelli sem muni „ræða við starfsfólk sitt.“

Þá segir maðurinn að í janúar síðastliðnum hafi United Airlines boðist til að að greiða honum 750 dollara gegn því að loka málinu. Hann hafi hafnað því boði.

Í tölvupósti United Airlines til mannsins, frá 13. febrúar síðastliðnum, kemur meðal annars fram:

„… Við drögum það ekki í efa að þetta hafi verið ekki verið ánægjuleg reynsla og við biðjumst enn og aftur afsökunar …“

Þá kemur fram að rætt hafi verið við viðkomandi starfsmenn flugvallarins sem áttu samskipti við manninn þennan dag.

Þá ritar fulltrúi flugfélagsins að kvartanir mannsins séu teknar til greina, en engu að síður sé ekki talið að hann hafi „sætt mismunun á grundvelli uppruna síns.“ Þá kemur fram í bréfinu að flugfélagið „geti ekki greitt bætur í samræmi við persónulega upplifun hvers og eins.“

Mál mannsins er enn til rannsóknar hjá Samgöngustofnun Bandaríkjanna. Maðurinn bendir á að hann hafi ferðast um allan heim fram til þessa og því ætti ekki að vera erfitt fyrir flugfélagið að nálgast upplýsingar um hann. „Það er ekkert sem afsakar þessa vanvirðingu í minn garð, sem er eingöngu sprottin af því að hvernig ég lít út, af rómönskum uppruna og dökkur á hörund. Ég vil deila minni sögu og ég vona að við getum opnað á umræðuna um kynþáttafordóma og mismunun. Þetta fallega land á ekki að hafa þennan blett á sér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“