fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Útsmoginn tölvurefur þóttist vera Elliði í fimmta skiptið – „Hvenær er næsti útborgunardagur?“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. mars 2020 12:34

Elliði Vignisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir á Facebook-síðu sinni að einhver tölvuþrjótur hafi nú í fimmta skiptið sent launafulltrúa hans tölvupóst og þóst vera hann. Í fljótu bragði virðist tölvupósturinn vera frá honum og er á íslensku, þó slæm sé.

Viðkomandi vill þó fá laun Elliða lögð inn á breskan bankareikning. Svo hljóðar bréfið:„Hæ, Hvenær er næsti útborgunardagur? Ég vil uppfæra launatékkareikninginn minn á breska bankareikninginn minn, vinsamlegasta ráð. Bestu kveðjur, Elliði Vignisson Bæjarstjóri.“

Sem betur fer þá lét viðkomandi ekki blekkjast. „Það er mikilvægt að verkferlar hjá fjármálastjórum og launafulltrúum séu skýrir og vandaðir, árásir eru algengar. Nú í morgun fékk launafulltrúinn minn neðangreindan póst frá „mér“ -sem ég þó sendi ekki-, með beiðni um að launagreiðslur mínar færu inn á reikning í Bretlandi. Þetta er í fimmta skipti sem reynt er að blekkja starfsmenn mér tengdum til að leggja inn á erlenda reikninga,“ skrifar Elliði.

https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10158068227414181&set=a.94911884180&type=3

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu