fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

„Kári Stefánsson er rokinn í fýlu“ – Mikið rætt um tilboð ÍE um skimun á kórónuveirunni og viðbrögð Persónuverndar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 8. mars 2020 10:19

Kári Stefánsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikla athygli og almenna ánægju vakti tilboð Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, til heilbrigðisyfirvalda rétt fyrir helgi, um að annast skimum í samfélaginu fyrir nýju kórónuveirunni. Bauðst Kári til að skima fyrir veirunni hjá fólki sem ekki hefur verið á tilgreindum hættusvæðum né í samskiptum við þá sem hafa dvalist á áhættusvæðum. Alma Möller landlæknir tók þessu tilboði fagnandi á blaðamannafundi Almannavarna, Landlæknis og Landhelgisgæslunnar á föstudag.

Í gær, laugardag, birtist tilkynning frá Kára þess efnis að Vísindasiðanefnd og Persónuvernd litu svo á að skimunin væri vísindarannsókn og því yrði ÍE að sækja um leyfi fyrir henni. ÍE ætlar hins vegar ekki að sækja um slíkt leyfi enda hefði aldrei staðið til að gera hér vísindarannsókn. „Þess vegna verður ekkert af okkar framlagi að þessu sinni. Þetta er endanleg ákvörðun,“ sagði í tilkynningu Kára.

Í gærkvöld bárust síðan fréttir þess efnis að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlaði að beita sér fyrir því að af skimuninni gæti orðið. Í yfirlýsingu hennar sagði:

„Við landlæknir og sóttvarnarlæknir erum sammála um að tilboð Íslenskrar erfðagreiningar við þessar fordæmalausu aðstæður sé mikilvægt framlag til lýðheilsu og sóttvarna. Við viljum leggja okkar af mörkum til að af framlagi ÍE geti orðið og trúum því að það geti gerst hratt.“

Í annarri yfirlýsingu frá ÍE er það rækilega undirstrikað að fyrirtækið hefði ekki haft í hyggju að safna lífsýnum vegna skimunarinnar.

Staða málsins er óviss núna en umræður eru miklar. Rannsóknarblaðamaðurinn Helgi Seljan skrifar á FB um málið:

„Það er kærkomið að sjá að yfirvöld heilbrigðismála skuli ætla að henda öðru frá sér og bregðast við með fumlausri flýtimeðferð þegar vá steðjar að, eins og núna þegar Kári Stefánsson er rokinn í fýlu.“

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir mikilvægt að greiða götu skimunarinnar en fylgja leikreglum um persónuvernd á sama tíma:

„Vísindasiðanefnd og Persónuvernd eru ekki starfrækt í því skyni að leggja stein í götu góðra manna sem vilja hjálpa almenningi. Þær framfylgja reglum sem eiga girða fyrir misnotkun á viðkvæmum persónuupplýsingum – jafnvel þótt slíkt misnotkun standi ekki til. Af fyrsta tilboði ÍE mátti ráði að til stæði að leggjast í vísindarannsóknir á lífssýnum sem lúta ákveðnum reglum og leyfisveitingum, í kjölfarið á skimuninni sem svo rausnarlega hafði verið boðin, og engum leyfum er háð. Nú hefur ÍE gefið út yfirlýsingu um að slíkt standi ekki til. Vonandi bera aðilar gæfu til að ráða saman fram úr þessu, okkur öllum til hagsbóta. Nú eru fortakslausir tímar að renna upp og þá er afar brýnt að fara, sem kostur er, eftir þeim leikreglum sem við höfum þróað til að gæta almannahagsmuna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rogers á óskalistanum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ingibjörg Sólrún fékk nóg af Írisi og eyddi henni af vinalistanum

Ingibjörg Sólrún fékk nóg af Írisi og eyddi henni af vinalistanum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dæmdur nauðgari fær tækifæri hjá Hæstarétti

Dæmdur nauðgari fær tækifæri hjá Hæstarétti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lætur Egil heyra það: „Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn”

Lætur Egil heyra það: „Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn”
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“