fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Örlagaríkur rúntur í Reykjanesbæ – Náðist á myndbandi með stúlku undir lögaldri – Ekki var allt sem sýndist samkvæmt dómara

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 6. mars 2020 14:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pólskur karlmaður var í dag sýknaður af ákæru í Héraðsdómi Reykjaness. Maðurinn var ásakaður um að hafa farið í sleik við, og káfað á brjósti stúlku sem var undir lögaldri.

Fyrir lá myndband af verknaðinum, sem sýndi manninn sem var 21 árs í sleik við stúlkuna sem var 14 ára. Dómari sagði maðurinn hafi ekki áttað sig á aldri stúkunnar og að þau hefði aldrei kyssts hefði það ekki verið vegna þrýstings vina þeirra. Því var um gáleysisbrot að ræða að mati dómara.

Pressa sögð hafa ollið atvikinu

Laugardagskvöldið 25. febrúar 2017 var stúlkan að eigin sögn full hjá vinkonu sinni, sem var einu ári eldri. Þær eiga að hafa verið að passa hjá þeirri síðarnefndu, í Reykjanesbæ og haft áfengi um hönd. 17 ára kærasti vinkonunnar á að hafa boðið þeim á rúntinn ásamt 21 árs gömlum frænda sínum, sem var sá ákærði í málinu. Stelpurnar þáðu boðið og fóru á rúntinn.

Fyrst um sinn sátu frændurnir fram í bílnum og stúlkurnar aftur í, en svo skiptu þau, þannig að kærustuparið sat fram í og stúlkan 14 ára, ásamt manninum 21 árs sátu saman aftur í bílnum. Þau tvö eiga ekki að hafa hist fyrir kvöld þetta.

Stúlkan og maðurinn eiga í kjölfarið að hafa fundið fyrir mikilli pressu frá kærustuparinu til þess að kyssast. Vinkonan er sögð hafa hallað sætinu sínu til að þröngva að stúlkunni, svo hún myndi kyssa manninn. Að lokum fóru þau í sleik. Vinkonan tók það upp á símann sinn. Samkvæmt stúlkunni fór maðurinn með hönd sína inn fyrir brjóstahaldara hennar og káfaði á henni. Maðurinn þvertekur fyrir það.

Stjúpfaðir sá myndbandið fyrir tilviljun

Stjúpfaðir stúlkunnar á að hafa séð áðurumrætt myndband fyrir tilviljun í spjaldtölvu. Hann ræddi þá við stúlkuna og vinkonuna um atvikið og fékk upp úr þeim að upplýsingar um kossinn og káfið sem stúlkan segir að hafi átt sér stað. Einnig fékk hann viðurkennt að stúlkurnar höfðu áfengi um hönd. Í kjölfarið lögðu stjúpfaðir og móðir stúlkunnar fram kæru, þann þriðja mars 2017.

Maðurinn var kærður fyrir kynferðisbrot gegn stúlkunni, sem var líkt og áður kom fram undir lögaldri. Hann sagðist ekki hafa verið meðvitaður um aldur stúlkunnar, einungis getað dæmt um aldur hennar útfrá litlu ljósi í myrkvuðum bíl. Hann hélt því fram að stúlkan hafi verið fullorðinsleg. Þó liggur fyrir að hann hafi haldið að stúlkan væri sextán ára.

Þess var krafist að maðurinn skyldi greiða 700.000 krónur í miskabætur.

Í dómnum segir að bæði stúlkan og maðurinn hafi verið trúverðug í framburði sínum og því sé erfitt að greina um hvort þeirra hafi rétt fyrir sér. Á myndbandinu að dæma á að vera greinilegt að um tungukoss sé að ræða, þó að ekki sé hægt að segja til um hvort að maðurinn hafi káfað á stúlkunni.

Stúlkan á að hafa verið að glíma við fleiri vandamál

Sálfræðingur stúlkunnar sagðist ekki geta sagt til um hversu alvarleg áhrif umrætt atvik hafði á hana, þar sem hún var að glíma við önnur vandamál á sama tíma.

Í dómnum kemur fram að dæmi séu um að tungukoss hafi verið álitin sem kynferðisleg áreitni, en hugtakið kynferðisleg er ekki skilgreint í téðum lagagreinum. Hugtakið getur átt við um „strokur, þukl og káf á kynfærum eða brjóstum annars einstaklings,“ en einnig „hvers kyns snertingu á líkama annars einstaklings sem sé andstæð góðum siðum og samskiptaháttum,“ Seinni skilgreiningin skuli sérstaklega hafa í huga þegar mál fólks sem er 15 ára eða yngra séu skoðuð.

Sýknaður vegna gáleysis

Að mati dómara var um gáleysisbrot að ræða. Maðurinn var sýknaður af ákærunni, þar sem hann á ekki að hafa áttað á sig á aldri stúlkunnar. Einnig kemur fram í dómnum að ekki var hægt að sanna meint káf og því ekki hægt að dæma manninn fyrir það.

Sakarkostnaður verður greiddur úr ríkissjóði, þar með talinn 34.104 króna aksturskostnaður og 459.000 króna þóknun réttargæslumanns Stúlkunnar og 38.976 króna aksturskostnaður og 674.000 króna málsvarnarlaun verjanda ákærða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust