fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Olga horfðist í augu við eigin fátækt eftir Kveik – Ákvörðun Póstsins gerði útslagið – „Ég á svo erfitt með að segja ósatt”

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 4. mars 2020 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Olga Björt Þórðardóttir blaðamaður tók við rekstri bæjarblaðsins Hafnfirðingur í fyrra og hefur rekið það af miklum myndarskap. Reksturinn er þó erfiður eins og hjá flestum fjölmiðlum og núna eru miklar blikur á lofti vegna þess að frá og með 1. maí næstkomandi mun Íslandspóstur hætta dreifingu á fjölpósti á suðvesturhorni landsins og bæjarblöð falla undir fjölpóst. Olga Björt glímir við fjárhagserfiðleika nú þegar og er saga hennar eitt dæmi af mörgum um kröpp kjör blaðamanna. Í leiðara Hafnfirðings segir Olga:

„Bæjarblöð heyra undir fjölpóst, þótt þau gegni í raun mun dýpra og mikilvægara hlutverki. Þau eru vettvangur fyrir lýðræðislega umræðu, varðveislu og endurspeglun sögu sveitarfélaga í rauntíma. Þau færa fréttir úr nærsamfélaginu sem stærri miðlar sinna síður, auk þess að vera markaðstæki fyrir íbúa, félög og fyrirtæki í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Samfélagslegt hlutverk Íslandspósts er einnig ríkt og því er þessi ákvörðun félagsins vanhugsuð.

Fyrirvarinn er sömuleiðis afar skammur og einn út af fyrir sig ekkert minna en áfall fyrir viðkvæman rekstur.“

Olga horfði á umfjöllun Kveiks um fátækt á Íslandi í gærkvöld og þó að henni finnist óþægilegt að skipa sér í flokk með fátækum og hún hafi hingað til ekki séð sig þar þá gat hún ekki neitað því að nokkur atriði í skilgreiningu á fátækt áttu við hennar ástand. Olga segir í pistli á Facebook um þetta:

„Ég horfði á þátt Kveiks í gær um fátækt. Þar kom fram listi yfir það sem einkennir fólk sem lifir í fátækt og ég gat hakað við þrennt; að hafa skuldað húsnæðiskostnað á sl. 12 mánuðum, að geta ekki boðið börnum mínum til útlanda einu sinni á ári og geta ekki mætt óvæntum útgjöldum að fjárhæð 160.000 á mánuði.

Ég skulda 2.500.000 á einu ári eftir að hafa stofnað útgáfufyrirtækið mitt og útborguð laun mín eru 350.000 á mánuði – ef ég er heppin. Endar ná nánast aldrei saman. Samt er ég meira og minna alltaf í vinnunni – sem ég elska.

Þetta dæmi gengur ekki upp, sérstaklega þegar stjórnvöld taka ofan á allt ákvarðanir eins og ég fer inn á í greininni. Punktur.“

Á vefsvæði Kveiks má sjá 9 skilgreiningar á fátækt. Þeir sem falla undir þrjár skilgreiningar teljast fátækir og þeir sem fleiri atriði eiga við um eru sárafátækir.

Fólk áttar sig ekki á mikilvægi héraðsblaða

„Ábyrgð Íslandspósts mikil,“ segir Olga í samtali við DV en Íslandspóstur hefur undanfarið farið í gegnum mikla fjárhagslega endurskipulagningu og er stöðvun á dreifingu fjölpósts hluti af þeim aðgerðum. Ég held að fólk átti sig ekki almennilega á mikilvægu hlutverki héraðsfréttamiðla og að þeir eru ekki bara eins og hver annar fjölpóstur,“ segir Olga enn fremur en hún er þakklát fyrir stuðning Hafnarfjarðarbæjar: „Hafnarfjarðarbær hefur stutt vel við útgáfuna. Ég er í raun að biðja hafnfirsk stjórnvöld um að láta sig málið varða og ræða við íslensk stjórnvöld. Ég hef ekkert út á bæjaryfirvöld að setja.“

„„Gengur ekki bara vel hjá þér?“ – er langalgengasta spurning sem ég fæ eftir að ég tók við rekstri bæjarblaðsins í janúar 2019. Þessi spurning verður alltaf þyngri og þyngri með hverjum mánuðinum, því ég á svo erfitt með að segja ósatt,“ segir Olga í Facebbook-pistli sínum. Það var heillandi verkefni fyrir hana að taka við rekstri bæjarblaðsins en núna horfist hún í augu við að verkefnið hefur komið henni í mikla erfiðleika.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærir Fjarðabyggð vegna útboðs á parhúsi – „Þetta lyktar af klíkuskap og gerir lítið úr þeim sem buðu og vinnu fasteignasalans“

Kærir Fjarðabyggð vegna útboðs á parhúsi – „Þetta lyktar af klíkuskap og gerir lítið úr þeim sem buðu og vinnu fasteignasalans“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl