Sigursteinn sagði frá þessu í Kastljósi í gærkvöldi. Þar kom einnig fram að lögreglan hefði tilefni til að hefja aftur rannsókn á málinu og að lögreglan sé með öll gögn frá þáttastjórnendum undir höndum. Fréttablaðið fjallaði um málið í gærkvöldi.
Gefin var út bók um morðið árið 2007 en í bókinni kemur fram að Gunnar hafi verið skotinn í höfuðið og að morðið hafi verið mjög óvenjulegt þar sem það virtist vera um ránmorð að ræða. Á vettvangi morðsins fannst skothylki úr 32 kalíbera skammbyssu en seinna kom í ljós að byssunni hafði verið stolið af heimili hótelstjóra Hótels Borg.
Sigursteinn fjallaði nýlega um mál Gunnars í þáttunum Sönn íslensk sakamál á Storytel. Í þættinum er fjallað um frásögn Valgeirs Skagfjörð og Sigurbjargar Steindórsdóttur, hálfsystur hans, frá árinu 1969. Sem börnum var þeim ógnað af manni sem vopnaður var skammbyssu. Sá maður kynnti sig og sagðist heita Þráinn en Sigurstein grunar að það hafi verið Þráinn Hleinar Kristjánsson sem lést fyrir tveimur árum. Sá Þráinn varð nágranna sínum að bana á Hverfisgötu árið 1979.
Sigursteinn telur að ákveðin líkindi séu með þessum tveimur morðum en þó tekur hann fram að ekki sé hægt að fullyrða um það. Hann setti upp sína eigin sakbendingu og sýndi systkinunum Valgeiri og Sigurbjörgu sex myndir þar sem ein myndin var af Þránni. Öllum þessum árum síðar bentu bæði Valgeir og Sigurbjörg á myndina af Þráni.
Valgeir ræddi við DV árið 2010 um það þegar maðurinn kom vopnaður á heimili þeirra. Þá var Valgeir á þrettánda ári en hann sagðist tengjast málinu á tvo vegu.
„Ég tengist þessu annars vegar þannig að mamma mín og sá sem var handtekinn fyrir morðið voru æskuvinir. Hann var leigubílstjóri og í raun heimilisvinur og skutlaði okkur krökkunum oft eitthvert ef á þurfti að halda.
Mamma var mjög veik manneskja, var virkur alkóhólisti og átti við geðtruflanir að stríða, og án þess að ígrunda það eitthvað ákvað hún að gerast málsvari vinar síns. Hún bjó til fjarvistarsönnun fyrir hann í þeirri von að hann yrði látinn laus, bjó til einhverjar sögur og flækti málin frekar en hitt. Þetta var ofsalega leiðinlegt og var ekki til þess að bæta þá óvissu sem ríkti í málinu.
Svo var það einn sunnudagsmorgun, um ári eftir morðið, að mamma var einhvers staðar úti á djammi og ég og yngri systir mín því ein heima. Þá kom allt í einu einhver maður inn í íbúðina okkar. Hann gekk bara inn, settist við eldhúsborðið okkar og dró upp skammbyssu. Ég man að ég varð ofboðslega hræddur.“
Þá segir Valgeir að maðurinn hafi sýnt honum byssuna og síðar sagt við Valgeir að hann hafi myrt leigubílstjórann Gunnar. „Mér skilst að byssan sem notuð var við morðið hafi gengið á milli manna, og það eru líkur á því að byssan sem maðurinn var með hafi verið sú byssa, án þess að ég viti það fyrir víst. Byssan sem var notuð við morðið var víst úr safni Jóhannesar á Borg sem var mikill byssusafnari. Grunurinn beindist að þessum vini mömmu af því að hann hafði verið að vinna um tíma hjá Jóhannesi á Hótel Borg.“
Í Kastljósi sagði Sigursteinn að ekki væri hægt að fullyrða um sekt Þráins en þó væri um að ræða mjög sterka vísbendingu. „Ég er ekki með þessu að segja að þetta sé maðurinn sem varð Gunnari Tryggvasyni að bana. Það er full ástæða til í ljósi þessara upplýsinga að skoða þetta betur. Nú er þessi maður sem að hugsanlega mögulega ógnaði systkinunum, hann er látinn. Hann verður ekki sóttur til saka héðan í frá. Það liggur hins vegar ljóst fyrir að það var annar maður í 11 mánuði í gæsluvarðhaldi grunaður um morðið á Gunnari á sínum tíma. Hans fjölskylda, börn og barnabörn eiga líka rétt á því að fá að vita hvað raunverulega gerðist þarna ef möguleiki er að varpa frekara ljósi á málið.“
Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, mætti einnig sem gestur í þættinum af Kastljósi. Þar sagði hann að lögreglan væri búin að taka fund með þáttargerðarfólkinu og fengið gögnin um málið. Eftir að gögnin voru skoðuð þótti ástæða til þess að hefja frumrannsókn að nýju.