Liverpool ætlar að tryggja framtíð Virgil van Dijk hjá félaginu og er að undirbúa nýjan samning fyrir hann.
Van Dijk hefur reynst Liverpool frábærlega frá því að hann kom frá Southampton fyrir, rúmum tveimur árum.
Van Dijk er sagður þéna 125 þúsund pund á viku í dag en Liverpool ku ætla að bjóða honum 150 þúsund pund á viku.
Með því myndu laun Van Dijk hækka um 16 milljónir á mánuði eða 192 milljónir á ári. 150 þúsund pund á viku er þó ekkert sérstaklega mikið í samanburði við laun hjá öðrum skærustu stjörnum deildarinnar.
Van Dijk er besti varnarmaður deildarinnar og gæti því farið fram á hærri laun.