Það stefnir allt í það að Adam Lallana fari á frjálsri sölu frá Liverpool næsta sumar þegar samningur hans er á enda.
Liverpool hefur engan sérstakan áhuga á að halda Lallana og hann vill spila meira.
Leicester er það félag sem hefur hvað mestan áhuga á að fá Lallana í sínar raðir, hann kæmi frítt frá Liverpool.
Telegraph segir frá en þar kemur einnnig fram að Tottenham, Arsenal og West Ham skoði mál Lallana og hafi áhuga.
Lallana hefur misst af lestinni hjá Jurgen Klopp en Lallana hefur verið einkar óheppin með meiðsli.