fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Jóhann segir Loga í fílabeinsturni – Íslendingar á Spáni æfir yfir orðum hans – Logi dregur í land – „Hvernig væri að kynna sér aðstæður hjá venjulegu fólki“

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 5. febrúar 2020 10:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkt og DV hefur greint frá þá er talsverð úlfúð meðal Íslendinga sem eru búsettir á Spáni vegna pistils Loga Bergmanns í Morgunblaðinu á sunnudaginn. Logi fullyrti í pistlinum að ekki væri hægt að leggja lífið á Spáni og Íslandi að jöfnu, en þangað flytja eldri borgara í stríðum straumum, ekki síst af fjárhagsástæðum.

Logi lagði áherslu á að á Íslandi væru launin hærri og gekk svo langt að gefa í skyn að það væri siðferðilega rangt að flytja suður á boginn og lifa á íslenskum launum. Orðrétt sagði hann:

„„Er ekki eitthvað siðferðislega rangt við það? Einhvers konar arðrán, svo notað sé orð sem virðist vera að skjóta upp kollinum aftur. Er það bara alveg eðlilegt að valsa með snjallsímann sinn, á íslenskum ráðstöfunartekjum, um útlenskar kjörbúðir með starfsfólk á lúsarlaunum, að mynda lága verðið? Deila því svo út um allt og tala um að allt sé hræðilegt á Íslandi?“

Sjá einnig: Logi spyr: Eru Íslendingar búsettir á Spáni siðlausir?

Allt slitið úr samhengi

Logi svarar þessari gagnrýni á Facebook í morgun og kennir DV um viðbrögð almennings, en þess má þó geta að Hringbraut fjallaði fyrst um inntakið í pistli Loga. „Ég benti einfaldlega á að laun (hvort sem eru lágmarks- eða meðallaun) á Spáni og Ungverjalandi væru á bilinu 15-45 prósent af launum á Íslandi. Þó ekki væri annað lægi það fyrir að það væri töluvert dýrara að kaupa í matinn hér. Við þetta bætist svo flutningskostnaður, minni samkeppni og áfengisgjöld, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Logi

Sjá einnig: Halldór: Ísland er óafsakanlega dýrt land – „Ég þekki heilan mökk af ungu fólki sem hefur flúið Ísland“

Hann nefnir ekki spurningar hans í pistlinum um siðleysi þeirra sem flytja suður. Hann segist hafa verið slitinn úr samhengi þrátt fyrir að DV vísaði fyrst og fremst til orða hans. „Þetta hefur náttúrlega allt verið slitið úr samhengi og látið líta út fyrir að ég sé að gera lítið úr fólki sem hefur kosið að leita sér betra lífs á Spáni. Svo er náttúrlega alls ekki. Ég á mér drauma um að bætast í hóp þeirra þegar ég verð orðinn gamall kall. Jafnvel fyrr,“ segir Logi.

Segir Loga tala niður til fólks

Jóhann Þorvarðarson, fastur pistlahöfundur Miðjunnar, segir í nýrri grein að Logi sleppi ýmsum tölum og staðreyndum í samanburði hans á Íslandi og Spáni. Í því samhengi nefnir hann bæði húsnæðiskostnað og betra heilbrigðiskerfi á Spáni.

„Logi Bergmann talar niður til Íslendinga sem dvelja langdvölum á Spáni, sumir vegna framfærsluerfiðleika, í nýlegri grein í Mogganum. Logi spyr hvort það sé siðlaust að gera verðsamanburð milli Íslands og láglaunalanda. Í samhenginu þá minnist Logi á arðrán eins kjánalegt og það nú hljómar. Við skulum hjálpa Loga að svara og lækka aðeins rostann í honum, koma honum niður á jörðina,“ segir Jóhann.

Betri spítalar og lægri leiga

Jóhann vísar svo í frétt DV um hvernig Jóhann L. Helgason húsasmíðameistari hafi fengið talsvert betri þjónustu á spænskum spítala en íslenskum. „Skoðum tvö grunnatriði í lífi allra fjölskyldna og byrjum á aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Jóhann L. Helgason húsasmíðameistari segir frá nýlegri heimsókn sinni á spænskt háskólasjúkrahús og er afar sáttur. Á 50 mínútum fór hann í gegnum móttöku, viðtal, tvær myndatökur, greiningu og útskrift. Allir þekkja hina rómuðu biðlista á Íslandi. Hér er mikill munur á lífsskilyrðum sem Loga finnst ekki skipta máli. Það er nú þannig að biðraðirnar draga úr hagvexti og gera reksturinn dýrari. Það heldur sköttum uppi sem fjármálaráðherra skilur ekki!,“ segir hann.

Sjá einnig: Jóhann fór á spítala á Spáni: Allt ferlið tók innan við klukkutíma – Segir Íslendinga geta lært mikið

Því næst nefnir Jóhann muninn á húsnæðiskostnaði. „Skoðum svo húsnæðiskostnað sem er að sliga stóran hluta þjóðarinnar. Íslendingar hafa gert því góð skil hvað húsnæðiskostnaðurinn er hagfelldur suður frá. Íbúð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum á Íslendingaslóðum er á bilinu 76-103 þúsund krónur. Ég ætla að bæta við og segja aðeins frá Torínó á Ítalíu þar sem Christian Ronaldo býr og spilar nú um stundir. Ég þekki aðila sem leigði góða 40 fermetra íbúð í miðri miðborginni á 580 evrur eða 80.000 krónur. Í miðborg Reykjavíkur er þá er verðið ekki undir 200.000 krónur. Viðkomandi aðili gat lifað af sumarlaunum sínum frá september og fram í mars, allt innifalið,“ segir Jóhann.

Fílabeinsturninn

Jóhann segir það siðferðilega rétt að bera saman umrædd lönd. „Svo þekki ég Ítala sem er ný útskrifaður verkfræðingur. Eftir skatta þá er hann með 220.000 krónur á mánuði. Hann borgar síðan 28.000 krónur fyrir 50 fermetra íbúð í góðu ástandi ekki langt frá Tórínó. Svo er matur mjög ódýr á Ítalíu. Hvernig var það var ekki Efling með auglýsingu um daginn sem sagði þá sorgarsögu af ræstingakonu sem ætti 20.000 krónur eftir af launum sínum þegar búið var að borga húsaleigu. Það er því siðferðilega rétt að gera samanburð milli landa enda sýna ofangreind launa og kostnaðarhlutföll að ekki er allt með felldu á Íslandi,“ segir Jóhann.

Að lokum biður Jóhann Loga um að kynna sér aðstæður hjá venjulegu fólki: „Síðan er ekkert arðrán fólgið í því að fara til landa þar sem lífið er léttara. Fólk er einfaldlega að bjarga sér til betra lífs og á ekki að þurfa að hafa samviskubit yfir því þó Logi geri því skóna með lúmskulegum hætti. Logi er augljóslega búinn að gleyma eigin uppruna úr Réttarholtinu í Reykjavík. Hann á að muna að algengt var að íbúar hverfisins fóru langar vegalengdir á árum áður upp til sveita landsins og byrgðu sig upp af kjöti og sláturmat fyrir veturinn. Ekki var það talið arðrán að fólk reyndi að bjarga sér! Það er undarlegt að Logi tali um þetta sem arðrán og þá frá hverjum er verið að stela? Kannski kaupmanninum sem ekki vill deila hagnum í rekstrinum með sanngjörnum hætti og er með of hátt söluverð? Hvernig væri að Funinn komi nú niður úr fílabeinsturninum og kynna sér aðstæður hjá venjulegu fólki. Vonandi er það ekki ofraun að horfa framan í samborgarana!“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Í gær

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skrif Guðmundar Andra um málþóf vekja athygli: „Niðurlægjandi fyrir þjóðina“

Skrif Guðmundar Andra um málþóf vekja athygli: „Niðurlægjandi fyrir þjóðina“