fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Gunnar Bragi skammar Ingu: Sakar hana um dylgjur „enda flokkur hennar í vanda“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 3. febrúar 2020 10:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Dylgjur Ingu eru vitanlega pólitískar enda flokkur hennar í vanda en miðað við hvernig hún sjálf vill að stjórnmálin séu þá kemur þetta á óvart,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, varaformaður Miðflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Þar sendir hann Ingu Sæland tóninn og sakar hana um dylgjur vegna greinar sem hún skrifaði fyrir rúmri viku síðan.

„Inga Sæland fer oft mikinn í ræðustól Alþingis, fjölmiðlum og greinaskrifum enda liggur henni oft mikið á hjarta. Hjarta Ingu er örugglega stórt enda vill hún taka utan um allt og alla. Inga á það hins vegar til að ýja að hlutum og dylgja. 25. janúar sl. ritaði Inga pistil hér í Moggann og kaus að tengja stutta viðkomu mína í sjávarútvegsráðuneytinu við afrit af samkomulagi sem íslensk og pólsk stjórnvöld stefndu á að gera og kom fyrir í tölvupóstum í sk. Samherjaskjölum. Ýjar hún að því að Samherji hafi haft einhvern aðgang að ráðuneytinu,“ segir Gunnar Bragi.

„Er þetta ekki spilling?“

Í greininni sem Inga skrifaði sagðist hún hafa legið yfir Samherjaskjölunum og rekið augun í tölvupóstsamskipti milli umboðsmann eða útgerðaraðila í samstarfi við Samherja í Póllandi við yfirmenn Samherja, þar með talið lögfræðing fyrirtækisins.

„Þarna kemur fram að Samherji hafði þá undir höndum drög að viljayfirlýsingu eða samningi um að efla viðskiptasamband Íslands og Póllands á sviði fiskveiða, fiskeldis og líftækni. Af hverju var Samherji með í sínum höndum drög að slíkum milliríkjasamningi í sjávarútvegi milli Íslands og Póllands, þar sem fyrirtækið var þungt inni með útgerðarrekstur og sölu sjávarafurða? Fyrirtækið hafði þetta skjal í höndum tveimur mánuðum áður en það var svo undirritað formlega af Gunnari Braga Sveinssyni, þáverandi sjávarútvegsráðherra, fyrir hönd Íslands í júlí 2016,“ sagði Inga sem spurði hvort þetta væri ekki alvarlegt.

Hér væru íslensk stjórnvöld að gera milliríkjasamning, hann væri í vinnslu í ráðuneytinu og Samherji með pappírana undir höndum. „Er þetta ekki spilling? Hvernig stendur á því að Samherji, hugsanlega eitt íslenskra fyrirtækja, var með þetta skjal meðan það var í vinnslu í ráðuneytinu?“

Kom Gunnari Braga á óvart

Gunnar Bragi svarar fyrir þetta í umræddri grein í Morgunblaðinu í dag.

„Nú er það þannig að samkomulagið er milli tveggja aðila, Íslands og Póllands. Fjölmargir koma að slíkri vinnu, embættismenn beggja landa, ræðismenn og sendiráðsfólk, starfsfólk ráðherra, ráðherra o.fl. Eftir fyrirgrennslan hér heima sem ég fór í er þessi skjöl komu fram er ljóst að ekki fóru nein gögn úr íslenska sjávarútvegsráðuneytinu til eins tiltekins fyrirtækis. Af skrifum Ingu verður heldur ekki séð að þetta sé endanlegt plagg sem ritað var undir. Stjórnvöld á hverjum tíma reyna að gera samninga við önnur ríki um hagsmuni þjóðarinnar. Stjórnmálamenn mæta á viðburði o.fl. til að sýna hópum eða fyrirtækjum stuðning en ekki man ég eftir því að nokkurn tíma hafi eitt fyrirtæki notið sérstakrar fyrirgreiðslu, a.m.k. ekki hjá mér.“

Gunnar Bragi segir að um hreinar og klárar pólitískar dylgjur sé að ræða. Hann beinir svo spjótum sínum að Ingu persónulega. „Enda flokkur hennar í vanda en miðað við hvernig hún sjálf vill að stjórnmálin séu þá kemur þetta á óvart. Það má dylgja um margt t.d. að Inga nyti sérkjara í sinni risastóru öryrkjaíbúð sem rúmað gæti stóra fjölskyldu eða að fjármunir sem hún lagði hald á eftir söfnun í Háskólabíói hefðu ekki skilað sér á réttan stað?“

Hann segir að í grein Ingu þann 25. janúar hafi ekkert nýtt komið fram. Samningar sem gerðir eru við erlend ríki taki mið af heildarhagsmunum Íslands sem er annað en Inga ýjar að í sínum pistli.

„Sem betur fer þá fara þeir samningar oftast saman við hagsmuni fyrirtækja og einstaklinga en alltaf er horft á hagsmuni heildarinnar. Það á líka að vera þannig þegar samið er að leitað sé álits hagaðila því það er til lítils að semja ef það skilar engu. Við Inga vitum það bæði að í störfum okkar hittum við eða fáum óskir um að hitta fólk frá margs konar samtökum og fyrirtækum, hópa fólks og einstaklinga sem hafa skoðanir, hugmyndir eða óskir fram að færa. Það er eðli stjórnmálanna, en okkar að vega og meta hvort við getum, viljum og teljum við hæfi að hlusta og e.t.v. aðstoða. Ég myndi gjarnan vilja hitta fleiri frá fyrirtækjum og einstaklinga með frábærar hugmyndir en ég hef þegar gert. Við eigum í góðu sambandi við Pólverja og án efa getum við eflt það enn frekar. Hér á landi búa þúsundir Pólverja og margir Íslendingar stunda viðskipti í Póllandi. Þannig á það að vera sem víðast.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Í gær

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkisendurskoðun með harðorða skýrslu um Sjúkratryggingar Íslands – Stofnunin bregðist ítrekað lögbundnu hlutverki sínu

Ríkisendurskoðun með harðorða skýrslu um Sjúkratryggingar Íslands – Stofnunin bregðist ítrekað lögbundnu hlutverki sínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Borgaði fyrir bílastæði en fékk síðan sekt í heimabankann – Þetta var klúðrið: „Algjör svartur blettur á samfélaginu“

Borgaði fyrir bílastæði en fékk síðan sekt í heimabankann – Þetta var klúðrið: „Algjör svartur blettur á samfélaginu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“